Ákærður fyrir að nauðga ósjálfbjarga konu á Landspítalanum

Héraðssaksóknari hefur ákært mann fyrir nauðgun og er honum gefið að sök að hafa haft önnur kynferðismök en samræði við sjúkling sem var inniliggjandi á Landspítalanum. 

Afmáð er úr ákæru á hvaða deild sjúkrahússins hið meinta brot var framið en atvikið átti sér stað þriðjudagskvöldið 23. apríl árið 2024. Ákærði er sagður hafa sett fingur sinn inn í leggöng konunnar og káfað innanklæða á brjóstum, geirvörtum og maga hennar, og nuddað kynfæri hennar. 

Er ákærði sagður hafa notfært sér að konan get ekki spornað við verknaðinum vegna lyfjaáhrifa sem hún var undir. 

Fyrir hönd brotaþola er gerð krafa um miskabætur að fjárhæð þrjár milljónir króna. 

Málið er rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur og verður fyrirtaka í málinu þann 11. nóvember. Þá munu ákæruvaldið og verjandi sakborningsins leggja fram gögn sín í málinu. 

Þinghald í málinu er lokað eins og oftast er í kynferðisbrotamálum.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅