Framlengja gæsluvarðhald yfir syninum
Sonurinn sem sætti gæsluvarðhaldi vegna manndráps í Breiðholti var í dag úrskurðaður í áframhaldandi fjögurra vikna gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur, eða til 7. desember. Gæsluvarðhaldið er á grundvelli almannahagsmuna.
Faðir hans er hins vegar laus úr haldi lögreglu.
Karlmaður á fertugsaldri lést eftir átök í Breiðholti aðfaranótt sunnudagsins 1. nóvember. Lögreglu barst tilkynning skömmu fyrir klukkan hálftvö og fundust tveir menn utandyra með alvarlega áverka sem taldir voru hafa hlotist af hnífsstungum.
Báðir voru fluttir á slysadeild, þar sem annar þeirra var úrskurðaður látinn skömmu eftir komuna. Hinn var lagður inn á gjörgæsludeild.
Þrír menn voru upphaflega handteknir í tengslum við rannsókn málsins. Tveir þeirra voru í kjölfarið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 9. nóvember.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗