Framlengja gæsluvarðhald yfir syninum

Maðurinn var upphaflega úrskurðaður í gæsluvarðhald sunnudaginn 1. nóvember.

Maðurinn var upphaflega úrskurðaður í gæsluvarðhald sunnudaginn 1. nóvember. mbl.is/Anton Brink

Sonurinn sem sætti gæsluvarðhaldi vegna manndráps í Breiðholti var í dag úrskurðaður í áframhaldandi fjögurra vikna gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur, eða til 7. desember. Gæsluvarðhaldið er á grundvelli almannahagsmuna.

Faðir hans er hins vegar laus úr haldi lögreglu.

Karlmaður á fertugsaldri lést eftir átök í Breiðholti aðfaranótt sunnudagsins 1. nóvember. Lögreglu barst tilkynning skömmu fyrir klukkan hálftvö og fundust tveir menn utandyra með alvarlega áverka sem taldir voru hafa hlotist af hnífsstungum.

Báðir voru fluttir á slysadeild, þar sem annar þeirra var úrskurðaður látinn skömmu eftir komuna. Hinn var lagður inn á gjörgæsludeild.

Þrír menn voru upphaflega handteknir í tengslum við rannsókn málsins. Tveir þeirra voru í kjölfarið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 9. nóvember.

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅