Ekkert bendi til að Verzlingar hafi verið að verki
Ekkert bendir til þess að nemendur Verzlunarskóla Íslands hafi staðið að skemmdarverkum á íþróttahúsi Menntaskólans í Reykjavík um helgina, að sögn Guðrúnar Ingu Sívertsen, skólastjóra Verzlunarskólans.
Líkt og mbl.is greindi frá í gær hafði meðal annars verið spreyjað „Viva Versló“ og „Fuck MR“ á íþróttahús MR, en ekki liggur fyrir hverjir voru að verki.
Guðrún Inga segir að skólayfirvöld Verzló og MR hafi kannað málið og að ekkert hafi komið fram sem bendi til þess að nemendur Verzlunarskólans tengist skemmdarverkunum.
„Það er ekkert sem bendir til þess að nemendur Verzló hafi staðið að þessu,“ segir Guðrún Inga.
Athygli vekur að á veggnum stendur „Viva Versló“, með s í stað z, en samkvæmt heimildum mbl.is er sú stafsetning ekki í samræmi við venjur nemenda Verzlunarskólans, sem leggja jafnan mikla áherslu á að skrifa nafn skólans með z.
Guðrún Inga Sívertsen, skólastjóri Verzlunarskóla Íslands, segir ekkert benda til þess að nemendur skólans hafi verið að verki. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Góðlátur rígur í áratugi
Í október kom til átaka í tengslum við fótboltaleik MR og Verzlunarskólans á Seltjarnarnesi. Þar brutust út slagsmál og einn fékk flösku í höfuðið. Í kjölfarið var viðburðum í árlegri MR–VÍ-viku frestað eða aflýst.
Guðrún Inga leggur áherslu á að samskipti skólanna séu góð og að aðeins fáeinir einstaklingar hafi staðið að ólátunum í október.
„Það hefur verið rígur milli þessara skóla í áratugi, en alltaf á góðan hátt,“ segir hún og bætir við að mikil vinsemd ríki jafnframt milli nemenda skólanna.
Hún segir að rígurinn hafi jafnan tengst keppnum og öðrum viðburðum milli skólanna. Nú sé hins vegar ekkert slíkt fram undan og því komi veggjakrotið eins og þruma úr heiðskíru lofti.
Guðrún Inga leggur áherslu á að samstarf sitt við Sólveigu Guðrúnu Hannesdóttur, rektor MR, hafi ávallt verið mjög gott. Skólarnir leggi áherslu á að koma í veg fyrir að sambærileg atvik og urðu í október endurtaki sig.
Nemendur tóku sjálfir frumkvæðið
Sameiginleg yfirlýsing nemendafélaga MR og Verzló var birt í október í kjölfar átakanna á fótboltaleik skólanna. Skjáskot/nfvi.is
Í kjölfar átakanna í október sendu nemendafélög skólanna frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem hegðunin var fordæmd og áhersla lögð á vináttu og gagnkvæma virðingu.
Guðrún Inga segir yfirlýsinguna alfarið hafa verið að frumkvæði nemendanna sjálfra og hrósar þeim fyrir að hafa tekið málin í sínar hendur.
Í yfirlýsingunni kemur fram að rígurinn milli skólanna eigi að vera heilbrigður og að nemendafélögin hyggist vinna saman að því að koma í veg fyrir að sambærileg atvik endurtaki sig.
Guðrún Inga segir jafnframt að ræðukeppni skólanna, sem frestað var til sunnudagsins 11. október vegna átakanna, hafi farið vel fram. Hún hafi sjálf verið viðstödd og nemendur verið til fyrirmyndar.
„Ég ætla að standa með mínum nemendum í þessu eins og flestu öðru,“ segir Guðrún Inga að lokum.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

