Liverpool-klúbburinn heimilislaus

Enska knattspyrnufélagið Liverpool á mikinn fjölda stuðningsmanna hér á landi.

Enska knattspyrnufélagið Liverpool á mikinn fjölda stuðningsmanna hér á landi. AFP/Oli Scarff

Stuðningsmannaklúbbur enska knattspyrnufélagsins Liverpool hér á landi er heimilislaus.

Þetta tilkynnti klúbburinn á samfélagsmiðlinum Facebook en í dag bárust fréttir af því að Minigarðinum í Skútuvogi yrði lokað og að hann yrði tekinn til gjaldþrotaskipta.

Liverpool-klúbburinn hefur haft nokkur aðsetur á höfuðborgarsvæðinu í gegnum tíðina, þar á meðal í Ölveri í Glæsibæ og á Players og Spot í Kópavogi.

Höfuðstöðvarnar í fjögur ár

Klúbburinn hafði verið með höfuðstöðvar í Minigarðinum í fjögur ár eða allt frá því í júlí árið 2022.

„Við viljum þakka Minigarðinum kærlega fyrir frábært samstarf í gegnum árin,“ segir í tilkynningu Liverpool-klúbbsins.

„Athugið að stjórnin er farin á fullt að leita að næsta heimavelli klúbbsins og munum við tilkynna það þegar það liggur fyrir,“ segir enn fremur í tilkynningunni.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅