Liverpool-klúbburinn heimilislaus
Stuðningsmannaklúbbur enska knattspyrnufélagsins Liverpool hér á landi er heimilislaus.
Þetta tilkynnti klúbburinn á samfélagsmiðlinum Facebook en í dag bárust fréttir af því að Minigarðinum í Skútuvogi yrði lokað og að hann yrði tekinn til gjaldþrotaskipta.
Liverpool-klúbburinn hefur haft nokkur aðsetur á höfuðborgarsvæðinu í gegnum tíðina, þar á meðal í Ölveri í Glæsibæ og á Players og Spot í Kópavogi.
Höfuðstöðvarnar í fjögur ár
Klúbburinn hafði verið með höfuðstöðvar í Minigarðinum í fjögur ár eða allt frá því í júlí árið 2022.
„Við viljum þakka Minigarðinum kærlega fyrir frábært samstarf í gegnum árin,“ segir í tilkynningu Liverpool-klúbbsins.
„Athugið að stjórnin er farin á fullt að leita að næsta heimavelli klúbbsins og munum við tilkynna það þegar það liggur fyrir,“ segir enn fremur í tilkynningunni.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗