Verðmætasköpunarhaustið náði ekki í Skútuvoginn

Eiginmaður Kristrúnar Frostadóttur á hlut í Munnbitanum sem rekur Minigarðinn.

Eiginmaður Kristrúnar Frostadóttur á hlut í Munnbitanum sem rekur Minigarðinn. Samsett mynd

Verðmætasköpunarhaustið sem Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra boðaði virðist ekki hafa náð alla leið í Skútuvoginn. Munnbitinn ehf., félag sem eiginmaður hennar, Einar Bergur Ingvarsson, á hlut í, hefur nú óskað eftir gjaldþrotaskiptum.

Munnbitinn ehf. heldur utan um rekstur Minigarðsins en eins og fram kom í tilkynningu frá Sigmari Vilhjálmssyni, stjórnarformanni og eiganda, fyrr í dag hefur Minigarðinum nú verið lokað.

Fjarlægt úr hagsmunaskrá á miðvikudag

Félagið var fjarlægt úr hagsmunaskrá forsætisráðherra á vef Alþingis síðastliðinn miðvikudag, aðeins nokkrum dögum áður en lokun Minigarðsins var tilkynnt.

Eiginmaður hennar, Einar Bergur, á 9,59% hlut í Munnbitanum auk þess að eiga hlut í AGR Dynamics ehf., hugbúnaðarfyrirtæki í Kópavogi, og skartgripafyrirtækinu Aurum og eru þeir hagsmunir skráðir á vef Alþingis. 

Viðskiptablaðið fjallaði um rekstrarerfiðleika Minigarðsins í síðasta mánuði. Þar kom fram að eigið fé rekstrarfélagsins væri neikvætt og að félagið hefði tapað um 65 milljónum króna samanlagt á síðustu tveimur árum.

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅