Erika Kirk fordæmir brandara um morðið

Erika Kirk þerrar tár við minningarathöfn um eiginmann sinn, Charlie Kirk, í Arizona í september 2025. Hún hefur fordæmt þá sem gera grín að morðinu á honum. AFP/Win McNamee

Erika Kirk, ekkja bandaríska íhaldsmannsins Charlies Kirks, hefur fordæmt þá sem gera grín að morðinu á eiginmanni hennar.

Viðbrögð hennar koma í kjölfar ummæla grínistans Daves Chappelles, sem sagðist líða betur eftir að Kirk var myrtur.

„Að sjá vinstrisinnaða hlaðvarpsstjórnendur, grínista og álitsgjafa hlæja að pólitísku morði eins og það sé skemmtiefni og dauði manns brandari er meira en viðbjóðslegt,“ skrifaði hún á X í gær.

Hún sagði morðið afleiðingu pólitísks ofbeldis sem hún og tvö börn þeirra þyrftu að lifa með alla ævi.

„Þú þarft ekki að vera sammála stjórnmálaskoðunum einhvers til að viðurkenna að líf hans hafi gildi,“ skrifaði hún og bætti við að aldrei mætti umbera, afsaka eða fagna pólitísku ofbeldi.

To see leftist podcasters, comedians, and commentators laugh about political assassination as though it’s entertainment and the destruction of a human life is a punchline, is beyond disgusting. My husband, Charlie Kirk, was killed in an act of political violence, something our two children and I will live with every day for the rest of our lives. A culture that laughs at assassination is one of profound moral decay. It threatens the very foundation of our country and the principles that hold our democracy together. You do not have to agree with someone’s politics to recognize the value of their life. This should not be so hard. Political violence must never be something this country tolerates, excuses, or celebrates.

— Erika Kirk (@MrsErikaKirk) November 8, 2026

Erika og Charlie Kirk á hátíðarkvöldi Turning Point USA í janúar 2025. Charlie var myrtur í september sama ár. AFP/Samuel Corum

Sagðist líða betur eftir morðið

Chappelle hefur sætt gagnrýni á samfélagsmiðlum eftir að myndskeið af uppistandi hans í Madison Square Garden í New York á föstudag fór í dreifingu.

„Síðan þessi Charlie Kirk var myrtur, og ég ætti ekki að segja þetta opinberlega, hefur mér liðið betur,“ sagði hann meðal annars. Hann bætti við að hann vissi að hann ætti ekki að segja þetta, en þannig liði honum.

Hlaðvarpsstjórnendurnir Jennifer Welch og Angie Sullivan hafa einnig sætt gagnrýni eftir að þær lásu upp færslu í þætti sínum, I've Had It, og hlógu að henni.

„Við ætlum að grafa Charlie Kirk upp og gera þetta aftur,“ stóð í færslunni og var þar vísað til morðsins á honum.

Þær báðust afsökunar í sameiginlegri yfirlýsingu á laugardag og sögðust sjá eftir því að hafa hlegið að brandaranum.

Kirk, sem var 31 árs og einn stofnenda samtakanna Turning Point USA, var skotinn til bana á viðburði í háskóla í Utah 10. september 2025.

Dave Chappelle at Madison Square Garden Last Night: "Ever since that guy Charlie Kirk got murdered... I feel better." https://t.co/aH9yJ8bTPf

— Open Source Intel (@Osint613) November 8, 2026

Variety

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅