Þrjár sjókvíar aflúsaðar í Hringsdal

Hér sést fóðurprammi Arnarlax dreginn að kvíabóli við Haganes í Arnarfirði. mbl.is/Guðlaugur Albertsson

Í lok vikunnar notar Arnarlax, í samvinnu við Matvælastofnun, aflúsunarefnið Salmosan vet. til að lúsameðhöndla þrjár af átta sjókvíum sem eftir eru á eldissvæði fyrirtækisins í Hringsdal í Arnarfirði.

Á vef fyrirtækisins kemur fram að hver kví verði meðhöndluð um borð í brunnbát.

„Fiski verður dælt um borð í brunnbát og hann aflúsaður þar. Efni verður sett í blöndunartank um borð í brunnbát og það blandað með fersku vatni og svo blandað í brunnana með sjó,“ segir þar.

Meðferð er sögð standa yfir í brunnum í þrjár klukkustundir.

„Fylgst verður vel með súrefni og fiskivelferð meðan á meðferð stendur. Meðferðarvatn úr brunnbát verður losað fyrir utan Arnarfjörð til að lágmarka umhverfisáhrif.“

Fram kemur að Salmosan vet. sé efni sem vinni á laxalús og verði sett í brunna brunnbáts í litlu magni eða 0,2 gr/m3 eða í hverja 1.000 lítra af meðferðarvatni.

Þá verði á svæðinu sett upp gul flögg meðan á meðferð stendur.

Eins segir að Matvælastofnun hafi leitað lögbundinna álita Fiskisjúkdómanefndar og Hafrannsóknarstofnunar og að Fiskisjúkdómanefnd hafi heimilað umbeðna lyfjameðhöndlun.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅