Greinir frá því hvernig herpes veiran sé farin að herja á sig á nýjan leik
Inés García, kærasta Lamine Yamal, stórstjörnu Barcelona, hefur vakið mikla athygli eftir að hún greindi fylgjendum sínum frá heilsufarsvandamáli sem hún hefur glímt við.
García, sem er 21 árs spænskur áhrifavaldur, birti mynd á Instagram þar sem hún sýndi frunsu sem hafði myndast á nefi hennar.
Hún útskýrði að hún hefði áður glímt við endurtekin frunsuköst, en verið laus við þau um nokkurt skeið.
„Það er langt síðan ég fékk síðast frunsu. Munið þið hvernig þetta var fyrir um ári síðan?“ skrifaði García.
„Þá fékk ég að minnsta kosti eitt kast í hverjum mánuði. Í gær vaknaði ég með frunsu á nefinu og hef verið svona síðasta sólarhringinn.“
Færslan hefur vakið mikil viðbrögð á samfélagsmiðlum, bæði jákvæð og neikvæð.
Frunsur orsakast af herpesveiru og eru afar algengar. Þær geta meðal annars komið fram í kringum munn og nef.
García er með milljónir fylgjenda á samfélagsmiðlum þar sem hún birtir reglulega efni tengt tísku og daglegu lífi.
Hún og Yamal, sem er 19 ára, gerðu samband sitt opinbert fyrr á árinu.
García hefur meðal annars sést styðja Yamal á stórum knattspyrnuviðburðum og mætti með honum á afhendingu Gullboltans í London í október.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗