Engar áhyggjur af aðkomu ESA

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra. mbl.is/Karítas

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist ekki hafa áhyggjur af aðkomu ESA að málefnum Landsvirkjunar vegna mögulegra pólitískra afskipta hér á landi. Þetta kom fram í máli hennar í óundirbúnum fyrirspurnartíma á þinginu í dag.

Svar hennar kom við fyrirspurn Stefáns Vagns Stefánssonar, þingmanns Framsóknarflokksins, sem tengdist málefnum Landsvirkjunar og starfslokum Harðar Arnarsonar sem forstjóra félagsins. Sagði hann óvænt af sér fyrr í haust eftir 17 ára farsælan feril og hætti nú um mánaðarmótin.

Hafði Hörður meðal annars lýst áhyggjum af breyttum samskiptum Landsvirkjunar og fjármálaráðuneytisins og óttaðist hann að pólitísk afskipti stjórnar myndu gera fyrirtækið óstarfhæft og skapað fyrirtækinu lagalega áhættu, meðal annars vegna reglna um ríkisstyrki á Evrópska efnahagssvæðinu.

Spurði Stefán vegna þessa Kristrúnu hvort hún deildi þessum áhyggjum og hvort hún teldi það áhyggjuefni að eftirlitsstofnun EFTA (ESA) myndi hefja frumkvæðisathugun á málinu og hvaða áhrif slík athugun myndi hafa á stöðu Landsvirkjunar.

„Ég hef ekki, nei, áhyggjur af aðkomu ESA í þessu máli. Það er bara ekkert óeðlilegt við að það sé haft eftirlit með stofnunum og fyrirtækjum,“ sagði Kristrún í svari sínu.

Sagði hún Daða annars hafa farið mjög vandlega yfir eðli funda sem hann hélt með stjórn Landsvirkjunar án aðkomu forstjóra, en þeir fundir hafa verið miðja þessa máls og vísað til þeirra sem einnar ástæðu þess að Hörður taldi skorta traust stjórnar á störfum sínum. Þá sagðist hún bera fullt traust til Daða. Más Kristóferssonar fjármálaráðherra.

„Þannig að ég hef ekki áhyggjur af þessu og bara ítreka það hérna að ég ber auðvitað fullt traust til fjármálaráðherra í þessu máli. Mér þykir hann hafa sett allar upplýsingar fram á borðið og ég held að það sé bara hið besta mál, ef þingið vill skoða þetta nánar, að það geri það, eins og hann hefur tekið jákvætt í,“ sagði Kristrún.

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅