Orðið á götunni: Næg verkefni fyrir Viðreisn – væntingar um endalok flokksins óskhyggja ein

Orðið á götunni er að dagskipunin hjá þeim standa að baki skrímsladeildar Sjálfstæðisflokksins sé að nú skuli reynt að gera út af við Viðreisn og tilgangurinn helgi meðalið í þeim efnum. Glöggt má greina þetta í „fréttaflutningi“ Morgunblaðsins, sem farið hefur hamförum gegn Viðreisn og þá sérstaklega formanni flokksins og varaformanni. Sem kunnugt er hefur skrímsladeildin heimilisfesti á ritstjórn blaðsins.

Nýjast dæmið um grímulausan áróður er viðtal í Spursmáli við Álfheiði Ingadóttur, fyrrverandi þingmann og ráðherra VG og Sigurð Inga Jóhannsson, fyrrverandi formann Framsóknarflokksins, þar sem þau eru leidd áfram í að fabúlera um það hvort hlutverki Viðreisnar í íslenskum stjórnmálum sé lokið. Álfheiður er í flokki sem þurrkaðist gersamlega út í síðustu kosningum og Sigurður Ingi er í Framsókn sem þurrkaðist næstum því út í síðustu kosningum. Bæði eru þau svarnir andstæðingar Viðreisnar og alls sem Viðreisn stendur fyrir og því kom ekkert á óvart að sameiginleg niðurstaða þeirra og þáttastjórnandans var sú að Viðreisn, sem fékk bestu niðurstöðu sína frá upphafi í síðustu kosningum á meðan flokkar Álfheiðar, Sigurðar Inga og þáttastjórnandans skíttöpuðu allir, var sú að Viðreisn væri á útleið.

Ekki vantar að Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins, er með svipaðar fabúleringar og liðið hér að ofan en það er ekkert nýtt. Hann er gamall og bitur karl sem hefur haft allt á hornum sér síðan stjórnmálaferli hans lauk fyrir margt löngu og endanlega rann upp fyrir honum að markmið hans og að feta í fótspor föður síns voru endanlega fyrir bý. Björn vildi verða ritstjóri Morgunblaðsins. Það tókst ekki. Hann langaði að verða utanríkisráðherra en tókst það ekki heldur. Forsætisráðuneytið kom aldrei til greina og sennilega áttaði Björnsig á því sjálfur. Þá ætlaði hann að verða borgarstjóri en tapaði stórt. Viðreisn er eitur í beinum Björns.

Orðið á götunni er að hlutverki Viðreisnar í íslenskum stjórnmálum sé langt frá því að vera lokið. Til dæmis er full þörf á frjálslyndum flokki sem aðhyllist markaðslausnir í íslenskum stjórnmálum. Enginn annar flokkur en Viðreisn fellur undir þá skilgreiningu.

Fjármálaráðherra Viðreisnar lagði fram frumvarp til hallalausra fjárlaga fyrir árið 2027, nokkuð sem fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokksins treysti sér ekki til að gera næstu 10 ár á undan eða svo. Verkefnin í fjármálaráðuneytinu taka aldrei enda og mikilvægt er að þar sitji ráðherra sem hefur bæði vilja og getu til að skila afgangi af rekstri ríkissjóðs. Þetta er forsenda þess að stöðugleiki ríki þannig að hægt verði að lækka vexti hér á landi. Nú stefnir í hraða lækkun verðbólgu á komandi mánuðum og misserum og í kjölfarið lækka vextir.

Dómsmálaráðherra Viðreisnar tók við slæmu búi eftir setu mishæfileika- og getulausra Sjálfstæðismanna í ráðuneytinu í áratug eða lengur. Dómsmálaráðherra Viðreisnar hefur komið skikki á útlendingamál, nokkuð sem Sjálfstæðismenn höfðu ekki manndóm til. Verkefnunum í dómsmálaráðuneytinu er engan veginn lokið og dómsmálaráðherra Viðreisnar er að hagræða og fækka stofnunum, sameina embætti og gera starfsemi sem undir ráðuneytið heyrir markvissari og hagkvæmari en verið hefur.

Atvinnuvegaráðuneytið hefur um langt árabil verið bandingi sérhagsmunaafla úr atvinnugreinum sem heyra undir ráðuneytið. Atvinnuvegaráðherra Viðreisnar kom inn í ráðuneytið og hefur heldur betur markað spor sín þar á skömmum tíma. Skemmst er að minnast lagfæringu veiðigjaldanna á síðasta ári. Verkefnin í ráðuneytinu eru óþrjótandi og fyrir öllu er að ráðuneytinu „stýri“ ekki strengjabrúður sérhagsmunanna eins og lengst af hefur verið. Þess vegna er mikilvægt að Viðreisn sé þar með hönd á stýri en ekki t.d. Sjálfstæðisflokkurinn eða Framsókn.

Aldrei hefur mætt meira á utanríkisráðherra Íslands en einmitt á þessu kjörtímabili og óvissa í alþjóðamálum er meiri en verið hefur um áratugaskeið. Orðið á götunni er að við slíkar aðstæður, þegar gríðarlega mikilvægt er að endurmeta stöðu og stefnu Íslands, ekki síst þegar kemur að vörnum landsins, bæði hervörnum og efnahagslegum, bandalagsþjóðum og þátttöku í alþjóðlegu samstarfi, sé mikið um vert að í utanríkismálum ríki stefna sem tekur mark af raunveruleikanum en er ekki föst inni í veröld sem var en er ekki lengur, eins og öll stjórnarandstaðan því miður er.

Ekki verður betur séð en að fullt traust ríki milli ríkisstjórnarflokkanna og að samstarfið í ríkisstjórninni sé gott og heilbrigt, enda leiðtogar stjórnarflokkanna samhentir. Þetta er annar veruleiki en í tíð síðustu ríkisstjórnar sem var í raun bandalag um kyrrstöðu á öllum sviðum mannlífs, jafnframt því sem eytt var um efni fram og safnað upp hundruð milljarða hallarekstri á sama tíma og innviðaskuldin margfaldaðist.

Orðið á götunni að ofangreind dæmi sýni svart á hvítu að hlutverki Viðreisnar í íslenskum stjórnmálum sé hvergi nærri lokið og allar vangaveltur um slíkt byggi á óskhyggju og engu öðru.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅