Verður næsti þjálfari Fylkis

Aron Baldvin Þórðarson tekur við Fylki.

Aron Baldvin Þórðarson tekur við Fylki. Ljósmynd/Víkingur

Aron Baldvin Þórðarson verður næsti þjálfari karlaliðs Fylkis í fótbolta.

Þetta herma heimildir mbl.is og Morgunblaðsins en Fótbolti.net greindi fyrst frá.

Aron, sem er 31 árs gamall, verður aðalþjálfari í fyrsta skipti en hann hefur verið aðstoðarþjálfari Víkings undanfarin ár.

Aron þekkir mjög vel til í Árbænum því hann er uppalinn Fylkismaður. Tekur hann við af Heimi Guðjónssyni sem er tekinn við ÍA.

Fylkir endaði í þriðja sæti 1. deildarinnar á síðustu leiktíð og tapaði gegn Þrótti í úrslitum umspilsins á Laugardalsvelli.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅