„Það er svo auðvelt í svona starfi að aftengjast“

Kristrún sagðist sjálf þekkja fólk með örorku og fötlun og að reynsla fólks í slíkri stöðu hefði meðal annars átt þátt í ákvörðun hennar um að fara í stjórnmál. mbl.is/Karítas

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir ýmislegt hafa breyst til hins betra fyrir öryrkja og fatlað fólk í tíð ríkisstjórnar hennar. Þar nefnir hún meðal annars lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, breytingar á almannatryggingakerfinu og nýtt örorku- og endurhæfingarkerfi.

Þetta sagði forsætisráðherra á málþingi ÖBÍ réttindasamtaka í Hörpu í dag í tilefni af því að ár er liðið frá því að Alþingi lögfesti samninginn. Réttindin sem hann lýsir eru til að mynda jafnt aðgengi, bann við mismunun, þátttaka á eigin forsendum og krafa um viðeigandi aðlögun.

Kristrún er stödd erlendis en svaraði spurningum samtakanna í vídeóávarpi.

Fá sæti við kjaraborðið

Spurð um hvað hefði breyst til hins betra fyrir öryrkja og fatlað fólk undir hennar stjórn nefndi Kristrún meðal annars að lífeyrir almannatrygginga fylgi nú launaþróun.

„Þetta skiptir rosalega miklu máli vegna þess að það er hópur af fólki, hvort sem það er á fullri örorku eða hlutaörorku, sem hefur ekki verkfallsrétt og þarna fær það sæti við kjaraborðið þegar kemur að þessu,“ sagði hún.

Þá hafi öryrkjum verið tryggð ævilöng aldursviðbót, frítekjumark vegna lífeyris verið hækkað, réttindavernd fatlaðs fólks verið styrkt og nýtt örorku- og endurhæfingarkerfi komið til framkvæmda í tíð ríkisstjórnarinnar.

Kristrún sagði jafnframt að málefni fatlaðs fólks snerust ekki eingöngu um sértæk réttindi heldur þyrfti að horfa á stöðu þess í samfélaginu í heild.

Þannig hefðu aðgerðir í húsnæðismálum, efling heilbrigðiskerfisins og uppbygging hjúkrunarheimila einnig áhrif á líf fatlaðs fólks.

„Svo erum við að vinna að hallalausum fjárlögum sem skiptir alveg rosalega miklu máli vegna þess að efnahagsástandið, verðbólgan og vextirnir, þetta hefur allt áhrif á fólk, sama hvort það sé að glíma við fötlun eða ekki.“

„Alltaf velti ég fyrir mér hvernig hún hafi það í dag“

Forsætisráðherra var einnig spurð hvort það hefði breytt sýn hennar eða viðhorfum að ræða við fólk sem þarf að reiða sig á þau kerfi sem hún ber nú ábyrgð á. Hún sagði það ekki spurningu að slík samtöl hefðu haft áhrif á sig.

Kristrún sagðist sjálf þekkja fólk með örorku og fötlun og að reynsla fólks í slíkri stöðu hefði meðal annars átt þátt í ákvörðun hennar um að fara í stjórnmál.

Hún sagði jafnframt að í starfi sínu hefði hún hitt fjölbreyttan hóp fólks og rifjaði sérstaklega upp konu sem mætti á fyrsta fundinn sem hún hélt sem stjórnmálamaður í Borgarnesi. Konan væri öryrki og hefði verið fyrst til að taka til máls á fundinum. Síðan þá hefði hún mætt á alla fundi sem Kristrún hefði haldið á svæðinu.

„Alltaf velti ég fyrir mér hvernig hún hafi það í dag, hvort við séum að betrumbæta hennar líf,“ sagði Kristrún. Slíkar sögur væru mikilvægar fyrir stjórnmálamenn.

„Það er svo auðvelt í svona starfi að aftengjast, það er svo auðvelt að hugsa bara svona abstrakt um hlutina,“ sagði hún og bætti við að stjórnmálamenn þyrftu að muna að þeir væru í samfélagslegu starfi og ynnu fyrir fólkið í landinu. Sérstaklega mikilvægt væri að hlusta á fólk sem hefði ekki jafn sterka rödd.

„Þannig að við þurfum að vera dugleg að heyra í fólki. Ég get svo sannarlega sagt að þetta hafi hreyft við mér og ýtt við mér,“ sagði Kristrún að lokum.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅