Keypti húsið af Shakiru og Pique á 1,5 milljarð - Ætlar að fara í miklar endurbætur

Lamine Yamal, stórstjarna Barcelona, hefur fest kaup á glæsilegu einbýlishúsi sem áður var í eigu Gerard Piqué og söngkonunnar Shakiru.

Yamal er sagður hafa greitt ellefu milljónir evra fyrir eignina, sem jafngildir rúmlega einum og hálfum milljarði íslenskra króna.

Spánverjinn og Inés García vinna nú að endurbótum á húsinu, sem er sannkölluð lúxushöll.

Húsið er á þremur hæðum og þar eru sjö svefnherbergi, tvö eldhús og fjölmargar verandir.

Þá eru þar bæði inni- og útisundlaug, tennisvöllur, líkamsræktaraðstaða og einkabíósalur.

Einnig er að finna vínkjallara, tölvuleikjaherbergi og hljóðver sem Shakira notaði áður.

Piqué, sem er fyrrverandi varnarmaður Barcelona, bjó í húsinu ásamt Shakiru áður en þau slitu sambandi sínu.

Yamal virðist því ætla að koma sér vel fyrir utan vallar.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅