Bílasvikin í Glitvangi: Eiginkonan sýknuð en eiginmaðurinn sakfelldur

Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt fyrrverandi eiganda fyrirtækisins Glitvangs í 15 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt í tengslum við sölu fjögurra Mercedes-Benz Sprinter-sendibifreiða sem pólsk fyrirtæki áttu en voru seldar hér á landi með milligöngu félagsins Daxson ehf. Sakfelldi var framkvæmdastjóri og stjórnarmaður í félagsis.

Glitvangur ehf., sem einnig var ákært í málinu, var dæmt til að greiða 36 milljónir króna í sekt fyrir peningaþvætti og skilasvik. 

Eiginkona eigandans var ákærð fyrir peningaþvætti og skilasvik en hún var hins vegar sýknuð þar sem ásetningur hennar taldist ósannaður því hún hafði litla innsýn í rekstur fyrirtækisins. 

Málið á rætur að rekja til viðskipta sakfellda við pólsku fyrirtækin Mercus og tengd félög þeirra á árunum 2018 og 2019. Hann hafði milligöngu um sölu á sendibifreiðum frá fyrirtækjunum til íslenskra kaupenda. Samkvæmt niðurstöðu dómsins voru bifreiðarnar ekki keyptar af Daxson ehf. heldur voru pólsku fyrirtækin eigendur þeirra og Daxson hafði aðeins milligöngu um söluna.

Seljendurnir fengu ekki peningana

Kaupendur greiddu kaupverð bifreiðanna inn á bankareikning Daxson en sakfelldi skilaði ekki fjármununum til pólsku seljendanna. Þess í stað ráðstafaði hann þeim til eigin nota, í þágu eiginkonu sinnar og félaganna Daxson og Glitvangs.

Ein bifreiðanna var seld fyrir rúmlega 11,4 milljónir króna eftir að hún hafði verið skráð á eiginkonuna. Um 11,1 milljón króna var síðan millifærð inn á reikning sakfellda. Tvær aðrar bifreiðar voru seldar Ultima Thule ehf. fyrir samtals rúmar 23,2 milljónir króna og önnur bifreið var seld Hinn slf. fyrir rúmar 12 milljónir króna. Ekkert af söluandvirði þessara bifreiða var greitt til Mercus-fyrirtækjanna.

Sakfelldi hélt því fram að um venjuleg viðskipti hefði verið að ræða og að hann eða Daxson hefðu í raun keypt bifreiðarnar af pólsku fyrirtækjunum. Hann taldi sig jafnframt eiga kröfur á hendur þeim vegna hönnunarvinnu, þjónustu, varahluta og annarrar vinnu sem hann hefði innt af hendi.

Dómurinn féllst ekki á þessar skýringar. Engin gögn studdu að sakfelldi eða Daxson hefðu keypt bifreiðarnar og framburður hans um það þótti ótrúverðugur. Þá lágu ekki fyrir skriflegir samningar eða fullnægjandi gögn um þær gagnkröfur sem hann vísaði til. Jafnvel þótt slíkar kröfur hefðu verið fyrir hendi hefði honum ekki verið heimilt að ráðstafa söluandvirðinu án samkomulags við eigendur bifreiðanna.

Dómurinn taldi því sannað að hann hefði haft fjármunina í vörslum sínum, tileinkað sér þá og haft ásetning til auðgunar. Hann var sakfelldur fyrir fjárdrátt vegna allra fjögurra bifreiðanna.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅