Óttast fall Manchester United
Phil Neville, fyrrverandi varnarmaður Manchester United, hefur varað við því að vörn liðsins gæti orðið til þess að liðið félli eftir 4:4-jafnteflið gegn Aston Villa í gær.
„Varnarlínan sem lauk leiknum, Mazraoui, Yoro, Heaven og Dorgu, með henni fellurðu,“ sagði hann við NBC Sports og átti þar við Noussair Mazraoui, Leny Yoro, Ayden Heaven og Patrick Dorgu.
Bróðir hans, Gary Neville, kenndi stjórnendum félagsins um að hafa ekki styrkt vörnina: „Þeir sem eru þar núna gera hver mistökin á fætur öðrum.“
Gary efaðist einnig um að það myndi leysa vanda United að skipta Michael Carrick út og hélt því fram að slæm leikmannakaup og skortur á forystu hefðu grafið undan hverjum knattspyrnustjóranum á fætur öðrum.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗