Brand dæmdur í 10 ára fangelsi
Breski grínistinn og leikarinn Russell Brand hefur verið dæmdur í tíu og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun og þrjár kynferðisárásir.
Hann var sakfelldur á fimmtudag en dómur féll í dag.
Við uppkvaðningu dómsins lýsti dómarinn Brand sem „kynferðislegu rándýri“ og sagði hann hafa logið ítrekað og sýnt „ótrúlegan hroka“.
Áður höfðu brotaþolar lýst fyrir dóminum þeim áhrifum sem brotin höfðu haft á þær.
Ein kvennanna sagðist hafa verið „í áfalli og uppnámi“ og bætt við: „Ég bar enga virðingu fyrir sjálfri mér.“
Önnur sagði: „Russell Brand er kynferðislegt rándýr sem sýnir enga iðrun.“ Sú þriðja sagðist hafa „fundið til vanmáttar á þeirri stundu“.
Konan sem Brand nauðgaði árið 2009 sagði fyrir dóminum að hún byggi við afleiðingar áfallsins. Hún hefði óttast að hafa smitast af HIV.
Sýknaður af þremur ákæruliðum
Brand var ákærður í sjö liðum. Fyrir þrjár nauðganir, þrjár kynferðisárásir og eina tilraun til ósæmilegrar árásar. Hann var sýknaður af þremur ákæruliðum.
Brotin sem hann var sakfelldur fyrir voru framin á árunum 2004 til 2009 og beindust gegn fjórum konum. Þær eiga allar rétt á að njóta nafnleyndar ævilangt.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗