Enn óljóst hvað lá að baki árásinni í Kraká

Pólskir saksóknarar segja enn óljóst hvað hafi legið að baki árás 24 ára manns sem er grunaður um að hafa orðið níu manns að bana, þar af þremur úr eigin fjölskyldu. Engin gögn tengi hann við tiltekna stjórnmálastefnu, þótt yfirvöld hafi áður sagt hann hafa verið heillaðan af hugmyndafræði öfgahægrimanna.

Maðurinn lést á sjúkrahúsi í dag, tveimur dögum eftir að hann særðist lífshættulega í skotbardaga við lögreglu í Kraká.

Hann er grunaður um að hafa skotið sex manns til bana með hálfsjálfvirkum riffli á torgi í borginni. Hann var klæddur herklæðnaði. Lík foreldra hans og systur fundust á heimili fjölskyldunnar í öðrum bæ.

Tveir lögreglumenn, sem særðust alvarlega við eftirförina, skutu manninn á gatnamótum nærri aðaltorgi Krakár. Fjölmiðlar hafa nafngreint hann sem Michal Oksinski.

Hann gekkst undir þrjár aðgerðir en var úrskurðaður látinn um klukkan 4.30 í nótt að staðartíma, eða 3.30 að íslenskum tíma, samkvæmt upplýsingum héraðsyfirvalda.

Maðurinn lést á sjúkrahúsi í dag, tveimur dögum eftir að hann særðist lífshættulega í skotbardaga við lögreglu í Kraká. AFP

Ekki hægt að fullyrða um hugmyndafræði

Yfirvöld höfðu áður sagt manninn hafa verið „heillaðan af hugmyndafræði öfgahægrimanna“. Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, kallaði árásina hryðjuverk. Hún er mannskæðasta skotárás í landinu frá falli kommúnismans árið 1989.

Á blaðamannafundi í dag sögðu saksóknarar hins vegar að ekki væri hægt að fullyrða að tiltekin hugmyndafræði hefði verið kveikjan að árásinni.

„Við höfum ekki komist að neinu sem gerir okkur kleift að fullyrða með ábyrgum hætti að hann hafi sótt innblástur í tiltekna hugmyndafræði,“ sagði Przemyslaw Nowak, talsmaður ríkissaksóknaraembættisins.

„Það er allt of snemmt að tjá sig um ástæðurnar. Við höfum ekki fundið nein augljós tákn sem almennt tengjast tiltekinni stjórnmálahreyfingu, hvort sem er á ysta hægri- eða vinstrivæng,“ bætti hann við.

Talskona innanríkisráðuneytisins sagði í pólsku útvarpi að fjölmörg merki á fatnaði Oksinskis, þar á meðal ásaumuð merki, væru til skoðunar við rannsóknina.

Þótt ástæður árásarinnar séu enn óljósar er hún rannsökuð sem hryðjuverk.

Tveir lögreglumenn, sem særðust alvarlega við eftirförina, skutu manninn á gatnamótum nærri aðaltorgi borgarinnar. AFP

Fimmtán særðust í skotárásinni

Sex manns létust í skotárásinni í Kraká, þar á meðal austurrísk kona og breskur karlmaður. Fimmtán særðust, að sögn yfirvalda.

Meðal hinna særðu eru ríkisborgarar Austurríkis, Bretlands, Þýskalands, Portúgals og Rússlands. Líðan hinna særðu var stöðug í dag, samkvæmt upplýsingum yfirvalda.

Oksinski hafði ekki áður hlotið refsingu, að sögn rannsóknaraðila sem pólskir fjölmiðlar vitnuðu til. Hann var félagi í skotfélagi ásamt föður sínum. Rannsóknaraðilar lögðu hald á ellefu skotvopn við leit.

Amma hans sagði við pólska fjölmiðla að hann hefði fengið skotvopnaleyfi á þessu ári.

Margir hafa komið saman til að minnast þeirra sem létust í árásinni. AFP

Endurskoða skilyrði fyrir skotvopnaleyfum

Í kjölfar árásarinnar tilkynnti innanríkisráðuneytið að skilyrði fyrir veitingu skotvopnaleyfa yrðu endurskoðuð. Meðal annars yrði farið fram á að læknisfræðilegar upplýsingar um leyfishafa væru uppfærðar reglulega.

Skotvopnaleyfum hefur fjölgað hratt í Póllandi. Samkvæmt upplýsingum lögreglu voru gefin út rúmlega 50 þúsund ný leyfi árið 2025 og voru þau þá alls orðin 411 þúsund.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅