Daninn líklegastur til að taka við

Thomas Frank

Thomas Frank AFP/Darren Staples

Thomas Frank er efstur á óskalista Crystal Palace til að taka við af Pierre Sage sem knattspyrnustjóri, samkvæmt The Athletic.

Viðræður hafa farið fram og Palace vonast til að ganga frá ráðningu fljótt í landsleikjahléinu.

Palace hefur ekki tilkynnt um brottrekstur Sage en búist er við að honum verði sagt upp eftir 3:1-heimatap gegn Liverpool í gær, sem skildi liðið eftir á botni ensku úrvalsdeildarinnar.

Frank var rekinn frá Tottenham í febrúar þegar liðið var í 16. sæti. Árangur hans hjá Brentford, sem hann kom upp í úrvalsdeildina og hélt þar í fjögur tímabil, heillar forráðamenn Palace.

Sean Dyche, Vitor Pereira og Tony Popovic, landsliðsþjálfari Ástralíu, koma einnig til greina.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅