Babb: Skemmtileg og einlæg þroskasaga um skrefin frá barnsaldri á unglingsár

Helga Sjöfn vill helst vera úti á sjó í hvalaskoðun með afa. Uppi á landi er nefnilega eintómt vesen. Foreldrar hennar eru nýlega skilin og pabbi, sem reyndar er stjúppabbi Helgu Sjafnar, kominn með nýja konu og tvíburasyni, og mamma er komin með blátt hár og húðflúr og farin að stunda ótal ný áhugamál. Helgu Sjöfn finnst 7. bekkur gagnslaus fyrir krakka sem ætla að verða skipstjórar.

Þegar allt verður vitlaust út af endurteknum fjarvistum og hegðun Helgu Sjafnar er hún send á félagsfærninámskeið fyrir börn í vanda, námskeið sem hún telur enga þörf á. En þar kynnist hún nýjum krökkum og meðal annars sætum fótboltastrák með fallegt hár. Hún gerir það þó að aðalverkefni sínu að hrinda Jóni, feimnum sveitastrák, út fyrir þægindarammann, eins og hún telur að sé honum fyrir bestu. 

Höfundarnir Arndís Þórarinsdóttir og Hulda Sigrún Bjarnadóttir hafa áður skrifað saman Blokkina á heimsenda og Mömmuskipti og hlotið fyrir þær fjölda verðlauna og viðurkenninga. Arndís hefur sömuleiðis hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir sínar bækur.

BABB er skemmtileg og einlæg þroskasaga um stúlku sem er að feta sig frá barnsárum yfir í unglingsárin. Bókin kemur inn á gildi vináttunnar, bæði nýrra vinatengsla og eldri, og hvernig þarf að rækta þau tengsl, vera vinur í raun og standa upp fyrir vinum sínum og sjálfum sér. Inn í söguna blandast flókin fjölskyldumynstur og samskipti, og áföll sem smitast geta milli kynslóða þegar ekki er unnið úr þeim með réttum hætti.

Estelle Pollaert myndlýsir bókina með ríkulegum hætti og minntu myndirnar mig á bækur Ole Lund Kirkegaard (Gúmmi-Tarsan, Fúsi froskagleypir og fleiri) sem komu út hérlendis á mínum grunnskólaárum og fjölluðu líkt og Babb um þetta skemmtilega en um leið krefjandi þroskastig barns- og unglingsáranna. 

Babb

  • Stjörnur: 4 stjörnur
  • Barnabók 
  • Höfundar: Arndís Þórarinsdóttir og Hulda Sigrún Bjarnadóttir, myndlýsing Estelle Pollaert 
  • Forlagið, Mál og menning, 2026
  • Innbundin, 233 bls.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅