Veitingahúsaeigandi tjáir sig eftir að kokkur var rekinn fyrir að „neita að setja ananas á pizzu“
Davide Tamburella var sagt upp störfum á veitingastaðnum La Costa í Queensland, eftir að nokkrir aðilar kvörtuðu undan framkomu hans, en kvartanirnar snerust meðal annars um að hann hefði neitað að setja ananas á pizzur fyrir gesti í veislu.
Sjá einnig: Kokkur rekinn eftir að hafa neitað að setja ananas á pítsu
Tamburella leitaði til áströlsku vinnuréttarnefndarinnar (Fair Work Commission) og hélt því fram að honum hefði verið sagt upp á ósanngjarnan hátt. Þar sagði hann að það væri „móðgun við menningu hans að setja ananas á pizzu,“ samkvæmt dómsúrskurði sem birtur var 3. nóvember. Einnig kom fram að þetta tilvik væri í þriðja sinn á síðustu fjórum árum sem Tamburella neitaði að nota ananas á pizzur.
Ingram
Samkvæmt BBC hafði hann beðið yfirmann sinn um að „kanna hversu mikilvægt það er fyrir Ítali að setja ekki ananas á pizzu.“ Nú hefur fyrrverandi yfirmaður hans, herra Ingram, tjáð sig um málið og viðurkennt að ananas teljist ekki hefðbundið álegg hjá Ítölum.
„Hver hefði haldið að ananas á pizzu myndi skapa slíkar umræður um allan heim?“ sagði hann í samtali við The Age. „Ítalir eru mjög hefðbundnir þegar kemur að mat, sérstaklega pizzum,“ sagði hann um atvikið á veitingastaðnum, sem nú hefur verið lokað.
„En þegar öllu er á botninn hvolft erum við ekki á Ítalíu. Við erum í Ástralíu og verðum að verða við sanngjörnum óskum viðskiptavina,“ bætti hann við.
Hann sagði einnig við miðilinn að „ananasmálið“ hefði ekki verið eina ástæðan fyrir því að Tamburella var látinn fara úr starfi, heldur hafi verið um að ræða „samspil margra þátta.“
Krafa Tamburella um bætur vegna ólögmætrar uppsagnar var vísað frá þar sem hún barst meira en 20 dögum eftir að honum var sagt upp störfum. Hann sagði nefndinni síðar að ástæðan væri sú að hann „þyrfti að safna öllum þeim gögnum sem hann þarfnaðist.“ Nefndarmaðurinn Jennifer Hunt vísaði málinu frá og sagði engar sérstakar aðstæður vera fyrir hendi sem réttlættu frest.
Á ananas heima á pizzu?
Könnun frá YouGov árið 2017 leiddi í ljós að 82% svarenda líkaði almennt vel við ananas. Hins vegar voru aðeins 53% hlynntir því að hafa hann á pizzunni sinni. 12% líkaði ekki við það, en 29% hötuðu það.
Sjá einnig: Má setja ananas á pizzuna eða ekki? - Matreiðslumaður svarar
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗