Raul fer í áhugavert starf á Spáni - Fyrsta stóra tækifærið hans
Raúl González Blanco, fyrrverandi stórstjarna Real Madrid, hefur tekið við starfi knattspyrnustjóra Real Oviedo á Spáni. Oviedo er í næst efstu deild.
Samkomulag hefur náðst milli aðila og er Spánverjinn tilbúinn að hefja nýjan kafla á þjálfaraferli sínum.
Raúl er ein mesta goðsögn í sögu Real Madrid en hann lék yfir 700 deildarleiki fyrir félagið og vann meðal annars Meistaradeild Evrópu þrisvar sinnum.
Eftir að leikmannaferlinum lauk sneri hann sér að þjálfun og stýrði meðal annars varaliði Real Madrid, Castilla.
Nú fær hann nýtt tækifæri til að sanna sig sem aðalþjálfari utan síns gamla félags.
Ráðningin markar spennandi tímamót fyrir Raúl, sem hefur lengi verið talinn eiga framtíðina fyrir sér í þjálfun.
Mikil eftirvænting ríkir því um hvernig honum tekst til hjá Real Oviedo á næstu mánuðum.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗