Sagðist hafa fellt kanslara Austurríkis

Vínarborg. Kanslarinn hrökklaðist frá völdum haustið 2021. Vísbendingar eru um að umfangsmikið njósnanet Rússa gæti hafa átt þátt í falli hans. AFP

Jan Marsalek, fyrrverandi stjórnandi þýska greiðslumiðlunarfyrirtækisins Wirecard og lykilmaður í umfangsmiklu njósnaneti Rússa í Evrópu, sagðist hafa átt þátt í að koma Sebastian Kurz, þáverandi kanslara Austurríkis, frá völdum árið 2021.

Þetta kemur fram í rannsóknargögnum austurrísku lögreglunnar sem breska dagblaðið Telegraph hefur komist yfir. Í skilaboðum til samstarfsmanns síns hélt Marsalek því fram að hann og samstarfsmenn hans hefðu átt þátt í því að austurrískir rannsakendur tóku farsíma eins nánasta samstarfsmanns Kurz. Upplýsingar úr símanum áttu síðar stóran þátt í falli kanslarans.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅