Johnson og Kelly: Nýir neistar á gömlum uppáhaldsstað
Dakota Johnson sást nýverið á Dan Tana’s í West Hollywood, þar sem Machine Gun Kelly var einnig meðal gesta. Hér er hún á hátíðarsýningu Verity í Lundúnum 24. september 2026. Brook Mitchell/AFP
Dakota Johnson mætti í kvöldverðarboð tískuhússins Khaite á Dan Tana’s í West Hollywood á fimmtudagskvöldið í síðustu viku, þar sem tónlistarmaðurinn Machine Gun Kelly, einnig þekktur sem MGK, sást einnig. Frá þessu greinir Vogue. Orðrómur hefur verið uppi um ástarsamband þeirra en hvorugt hefur staðfest það opinberlega. Dan Tana’s hefur tekið á móti kynslóðum Hollywood-stjarna og á sér sögu sem er ekki síður forvitnileg en gestalistinn. Nú gætu nýir neistar hafa kviknað á þessum gamla uppáhaldsstað.
Dan Tana’s var opnaður árið 1964 í litlu gulu húsi við Santa Monica Boulevard. Í tveimur litlum veitingasölum rúmast aðeins 17 borð, ásamt nokkrum sætum við barinn. Rauðir setubásar og rauð- og hvítköflóttir dúkar setja svip á staðinn, sem hefur meðal annars verið í uppáhaldi hjá Jack Nicholson, Elizabeth Taylor og Richard Burton.
Kelly með eigið kaffihús
Kelly hefur sjálfur látið til sín taka í veitingarekstri. Árið 2020 stofnaði hann 27 Club Coffee í Cleveland í Ohio, þar sem boðið er upp á kaffi, mat og kokteila.
Nafnið vísar til hins svokallaða 27 klúbbs, tónlistarfólks sem lést aðeins 27 ára. Þar á meðal eru Jimi Hendrix, Janis Joplin, Kurt Cobain og Amy Winehouse. Með kaffihúsinu vildi Kelly heiðra minningu þeirra og sækir staðurinn innblástur í tónlistarheiminn.
Clooney fær kálfasneið
Dan Tana’s er með skemmtilegan matseðil með réttum sem bera nöfn frægra fastagesta. Þar er kálfasneið að hætti Mílanóbúa kennd við George Clooney, saxað salat við Nicky Hilton, rækjur við Jerry Buss og pipruð New York-steik við leikarann Dabney Coleman.
Matreiðslan er í hefðbundnum ítalsk-amerískum stíl. Kjúklingur að hætti Parma, með tómatsósu og bræddum osti, er meðal þeirra rétta sem matarunnendur sækja í. Bon Appétit mælir sérstaklega með honum, Caesar-salati sem er útbúið við borðið og cappuccino-ísnum í eftirrétt.
Time Out nefnir einnig steikurnar og kartöflurnar að hætti Beckermans, sem eru bornar fram með stökkum steiktum lauk.
Sex áratugir af Hollywood-sögum
Fyrr á þessu ári rifjuðu dætur stofnandans, Katerina og Gabrielle Tana, upp uppvöxt sinn á veitingastaðnum í viðtali við Vanity Fair. Tilefnið var útgáfa endurminninga föður þeirra, Everybody Came to Tana’s.
Í endurminningunum Everybody Came to Tana’s: An American Dream Come True segir Dan Tana frá leið sinni frá Júgóslavíu til Hollywood og veitingastaðnum sem varð samkomustaður kynslóða af stjörnum. Ljósmynd/Amazon
Í bókinni eru Brad Pitt, Leonardo DiCaprio, Joni Mitchell, Fred Astaire og Barack Obama meðal þeirra sem Tana nefnir úr hópi fastagesta. Dæturnar minnast þess sjálfar að hafa komið við eftir skóla og fengið óáfenga Shirley Temple-drykki við barinn áður en kvöldverðarþjónustan hófst.
Þegar eldsvoði varð á staðnum árið 1980 báðu fastagestirnir um að hann yrði endurbyggður nákvæmlega eins og áður. Það var gert.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/67/99/1679998.jpg)
