Sekt lækkuð úr 5,3 milljónum í 640 þúsund
Maðurinn var sýknaður af hluta sakargifta þar sem ákæruvaldinu tókst ekki að sanna að fjórtán sölureikningar hefðu verið gefnir út meðan hann var framkvæmdastjóri og stjórnarmaður félagsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Landsréttur hefur mildað refsingu karlmanns fyrir skatta- og bókhaldsbrot í rekstri einkahlutafélags.
Fangelsisrefsing hans var stytt úr fimm mánuðum í 30 daga og sekt lækkuð úr tæpum 5,3 milljónum króna í 640 þúsund krónur. Fangelsisrefsingin er áfram skilorðsbundin til tveggja ára.
Maðurinn var sýknaður af hluta sakargifta þar sem ákæruvaldinu tókst ekki að sanna að fjórtán sölureikningar hefðu verið gefnir út meðan hann var framkvæmdastjóri og stjórnarmaður félagsins.
Dómurinn var kveðinn upp 5. nóvember. Ákæruvaldið hafði krafist þyngri refsingar en maðurinn sýknu, til vara vægari refsingar.
Taldi reikninga hafa verið dagsetta aftur í tímann
Málið varðaði ábyrgð mannsins á skattskilum og bókhaldi félagsins frá 1. október 2015 til 11. janúar 2016. Honum var meðal annars gefið að sök að hafa, ásamt öðrum manni, ekki skilað virðisaukaskattsskýrslu fyrir september og október 2015 og ekki staðið skil á 5.259.669 krónum í virðisaukaskatt.
Skattfjárhæðin byggðist á sextán sölureikningum. Maðurinn hélt því fram að enginn rekstur hefði verið í félaginu meðan hann stýrði því og að hann hefði enga reikninga gefið út. Einhver annar hefði gefið þá út síðar og dagsett aftur í tímann.
Hann vísaði meðal annars til gagna um nafnbreytingu félagsins. Reikningar bæru nýja heitið þótt þeir væru dagsettir áður en félagið fékk það nafn.
Látinn njóta vafans um fjórtán reikninga
Landsréttur taldi ekki unnt að sannreyna dagsetningar fjórtán reikninganna. Afrit þeirra lágu ekki fyrir í gögnum frá rannsóknaraðilum og ekki var hægt að ráða af bankayfirlitum hvort eða hvenær einstakir reikningar hefðu verið greiddir.
Þá höfðu báðir mennirnir borið að reikningar félagsins hefðu verið dagsettir aftur í tímann.
Að þessu virtu taldi Landsréttur vafa leika á um hvort einhverjir þessara reikninga hefðu verið gefnir út eftir að maðurinn vék úr stjórn félagsins. Var hann látinn njóta þess vafa.
Öðru máli gegndi um tvo reikninga sem voru gefnir út í september 2015 undir eldra heiti félagsins. Afrit þeirra lágu fyrir og útgáfa þeirra hafði verið staðfest við rannsókn málsins. Virðisaukaskattur samkvæmt þeim nam samtals 643.132 krónum.
Gat ekki vísað ábyrgðinni á annan
Landsréttur taldi manninn bera ábyrgð á skilum virðisaukaskattsskýrslunnar og skattsins vegna reikninganna tveggja. Hann gæti ekki varpað þeirri ábyrgð frá sér með almennri tilvísun til þess að annar maður hefði átt að annast skattskilin.
Rétturinn benti jafnframt á að maðurinn hefði ítrekað tekið reiðufé út af bankareikningi félagsins síðari hluta árs 2015. Honum hefðu því verið ljósar hreyfingar á reikningnum sem vart gætu stafað af öðru en rekstri.
Þá var hann sakfelldur fyrir bókhaldsbrot. Ekkert bókhald hafði verið fært fyrir félagið og bókhaldsgögn ekki varðveitt með fullnægjandi hætti.
Sakfellingin þrengri en í héraði
Héraðsdómur Reykjavíkur hafði sakfellt manninn fyrir vanskil á allri skattfjárhæðinni og dæmt hann í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi. Sektin nam 5.259.669 krónum, en helmingur hennar var skilorðsbundinn vegna óhæfilegs dráttar á málinu.
Landsréttur takmarkaði hins vegar sakfellinguna vegna skattvanskila við reikningana tvo. Rétturinn taldi jafnframt að skattalagabrotið teldist ekki verulegt í skilningi ákvæðis almennra hegningarlaga um meiri háttar skattalagabrot.
Refsingin var ákveðin 30 daga skilorðsbundið fangelsi og 640 þúsund króna sekt. Sektina ber að greiða innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins en ella sæta 32 daga fangelsi.
Manninum var einnig gert að greiða fjórðung sakarkostnaðar síns í héraði og fjórðung áfrýjunarkostnaðar. Kostnaðurinn greiðist að öðru leyti úr ríkissjóði.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗