Sonur goðsagnarinnar að slá í gegn
Vincent Seger Ibrahimovic, 18 ára yngsti sonur Zlatans Ibrahimovic, fyrrverandi framherja sænska landsliðsins, skoraði sín fyrstu tvö mörk fyrir unglingalið AC Milan í 5:1-sigri á Albinoleffe.
Eldri bróðir hans, Maximilian, sem er 20 ára, lék áður með unglingaliði Milan og Milan Futuro. Hann leikur nú með AZ og U21-liði félagsins í Hollandi.
Zlatan Ibrahimovic er einn besti knattspyrnumaður Svíþjóðar og markahæsti leikmaður landsliðsins frá upphafi, með 62 mörk í 122 landsleikjum.
Framherjinn lék meðal annars með Ajax, Juventus, Inter, Barcelona, Milan, Paris Saint-Germain og Manchester United áður en hann lagði skóna á hilluna árið 2023.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗