Sonur goðsagnarinnar að slá í gegn

Vincent Seger Ibrahimovic er byrjaður að láta að sér kveða.

Vincent Seger Ibrahimovic er byrjaður að láta að sér kveða. Ljósmynd/AC Milan

Vincent Seger Ibrahimovic, 18 ára yngsti sonur Zlatans Ibrahimovic, fyrrverandi framherja sænska landsliðsins, skoraði sín fyrstu tvö mörk fyrir unglingalið AC Milan í 5:1-sigri á Albinoleffe.

Eldri bróðir hans, Maximilian, sem er 20 ára, lék áður með unglingaliði Milan og Milan Futuro. Hann leikur nú með AZ og U21-liði félagsins í Hollandi.

Zlatan Ibrahimovic er einn besti knattspyrnumaður Svíþjóðar og markahæsti leikmaður landsliðsins frá upphafi, með 62 mörk í 122 landsleikjum.

Framherjinn lék meðal annars með Ajax, Juventus, Inter, Barcelona, Milan, Paris Saint-Germain og Manchester United áður en hann lagði skóna á hilluna árið 2023.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅