Hefst nýtt tímabil á mörkuðum?

Í kauphöllinni í New York mátti finna þetta litla altari, tileinkað Donald Trump Bandaríkjaforseta, sama dag og markaðurinn var að jafna sig á þeirri miklu lækkun sem fylgdi í kjölfar kosningasigurs demókrata. Það er hætt við að andrúmsloftið á Wall Street breytist með pólitíkinni. AFP/Spencer Platt

Það má saka Donald Trump um ýmislegt, en það verður ekki af honum tekið að hann leggur ofuráherslu á að efla bandaríska hagkerfið – nánast sama hvað það kostar.

Trump lítur á bandarísku hlutabréfavísitölurnar sem mælistiku á efnahagsstefnu sína og þegar S&P 500 slær nýtt met er ekki óalgengt að Bandaríkjaforseti birti færslu á samfélagsmiðlum þar sem hann hreykir sér af árangrinum.

Markaðurinn tók mikla dýfu strax eftir að Trump hafði Hillary Clinton óvænt undir í nóvember 2016 enda kom niðurstaðan flestum í opna skjöldu og gagnrýnendur Trumps höfðu varað við því að næði hann kjöri myndi það skaða orðspor Bandaríkjanna og skapa mikla óvissu um þróun efnahagsmála. En eins og hendi væri veifað réttu bandarísk hlutabréf úr kútnum og héldu svo áfram að styrkjast nánast viðstöðulaust þegar fjárfestar áttuðu sig smám saman á því að Trump myndi leggja ofuráherslu á hlutabréfamarkaðinn.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅