Stjörnuprýtt fertugsafmæli Sir Alex Ferguson um helgina
Fjöldi fyrrverandi leikmanna Manchester United kom saman á Old Trafford um helgina til að fagna því að 40 ár eru liðin frá því að Sir Alex Ferguson tók við stjórn félagsins.
Skotinn tók við United þann 6. nóvember 1986 og stýrði liðinu í rúm 26 ár áður en hann lét af störfum árið 2013.
Á þeim tíma vann hann meðal annars 13 Englandsmeistaratitla og tvo Meistaradeildartitla. Þá leiddi hann United til sögulegrar þrennu árið 1999.
Um 100 gestir mættu til veislunnar, þar á meðal fjölmargar goðsagnir félagsins.
Ryan Giggs, Edwin van der Sar, Nemanja Vidic, Robin van Persie, Javier Hernandez, Denis Irwin og Darren Fletcher voru meðal þeirra sem fögnuðu með Ferguson.
Michael Carrick, núverandi knattspyrnustjóri United, var einnig á staðnum ásamt fyrrverandi samherjum sínum.
Leikmennirnir sem mættu til veislunnar hafa samtals unnið hvorki meira né minna en 75 titla í ensku úrvalsdeildinni.
Van der Sar birti myndir frá kvöldinu á Instagram þar sem hann fagnaði endurfundunum við gamla stjórann og fyrrverandi samherja.
Gary Neville og Phil Neville komust hins vegar ekki vegna sjónvarpsverkefna í Bandaríkjunum.
Ferguson, sem er 84 ára, naut kvöldsins í góðra vina hópi en áhrif hans á sögu Manchester United eru óumdeild.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗