Guðrún biskup lofuð í hástert eftir að hafa opnað sig í einlægu viðtali - „Ég gekk í Þjóðkirkjuna á meðan þættinum stóð“

Guðrún Karls Helgudóttir biskup Íslands hlýtur mikið lof á samfélagsmiðlum eftir einlægt viðtal við hana sem sýnt var á RÚV í gærkvöldi. Þar ræðir Guðrún m.a. mikilvægi þess að hlúa að andlegri heilsu og greinir hún í þættinum frá sinni eigin baráttu við kvíða. Hún ræðir einnig ótímabært fráfall bróður síns, eftir sjálfsvíg, og sömuleiðis málefni kirkjunnar almennt og mikilvægi þess að kirkjan standi vörð um réttindi og reisn allra manneskja. Hafa sumir sem hrósa Guðrúnu sagst hafa eftir viðtalið eða hennar vegna skráð sig á ný í Þjóðkirkjuna eftir úrsögn mörgum árum áður.

Biskup var viðmælandi Viktoríu Hermannsdóttur í þætti hennar Svona er lífið.

Í þættinum greinir Guðrún frá því að bróðir hennar heitinn, Einar Karlsson, hafi verið 12 árum yngri en hún. Einar svipti sig lífi þegar hann var 19 ára gamall:

„Það var mikill harmur. Hann var okkur mikill harmdauði. Þetta var mikið áfall og sorg í fjölskyldunni.“

Einar var á lokaári í menntaskóla þegar hann féll frá.

Guðrún segist telja að þar sem hún bjó í Svíþjóð þegar Einar lést hafi það líklega lengt sorgartímabilið hjá henni. Í hvert skipti sem hún hafi komið til Íslands á þessum tíma hafi sorgin skollið aftur á henni og orðið meiri í hvert skipti.

Foreldrar

Guðrún segist einnig hafa syrgt Einar fyrir hönd foreldra þeirra og talið það verra fyrir þau að missa barnið sitt en hana að missa bróður:

„Ég syrgði í rauninni ekki fyrir sjálfa mig fyrr en svolítið seinna.“

Hún hafi hins vegar fengið sálfræðiaðstoð í Svíþjóð sem hafi hjálpað henni mikið.

Guðrún segist hafa nýtt þessa reynslu sína til að hjálpa fjölskyldum sem hafa misst ástvini í sjálfsvígi:

„Ég er alveg viss um þetta hafi gert mig að betri presti.“

Guðrún segir að Einar hafi gert eina tilraun til sjálfsvígs áður og það hafi ekki náðst að komast að því hvað nákvæmlega var að hrjá hann áður en hann lést.

Kvíði

Guðrún segir mikilvægt að tala um andlega heilsu og um það hvernig manni líði. Hún ræðir í þættinum sína eigin baráttu við kvíða:

„Það er þannig með marga andlega glímuna að hún sést sjaldnast utan á fólki.“

Hún ségir að í sínu tilfelli hafi verið um ofsakvíða að ræða en hún finni lítið fyrir honum í dag. Kvíðinn hafi hins vegar fylgt henni nánast alla hennar tíð. Aðspurð um hvernig kvíðinn lýsti sér svarar Guðrún:

„Eiginlega bara sem algjör angist í raun og veru.“

Hún hafi verið ung að árum þegar hún fann fyrst fyrir kvíðanum. Hann hafi brotist fram af einna mestum krafti þegar hún eignaðist sitt fyrsta barn og það hafi tekið hana tíma að átta sig á hvað amaði að henni:

„Þetta er svo ofboðslega vont.“

Það hafi hjálpað henni að horfast í augu við kvíðann og flýja hann ekki og það sé besta leiðin:

„Það getur tekið svolítið langan tíma að gera það vegna þess að það er mjög erfitt.“

Kirkjan

Auk sinna persónulegu mála ræðir Guðrún í viðtalinu sína sýn á hlutverk kirkjunnar í þjóðfélaginu. Hún nefnir þetta m.a. í samhengi við hatursorðræðu gegn trans fólki en eitt barna biskupsins er trans eins og hún hefur áður greint frá, en hún ræðir það einnig í umræddu viðtali.

Guðrún segir að kirkjan eigi að styðja við bakið á öllum hópum sem sæti aðkasti, fordómum og hatri. Það sé mikilvægt að kirkjan standi með mannréttindum allra:

„Vegna þess að Jesús gerði það.“

Lofið

Á samfélagsmiðlum hefur Guðrún hlotið mikið lof í fjölda færslna og athugasemda fyrir einlægni sína í viðtalinu við Viktoríu.

Einn maður segist til að mynda hafa ákveðið að skrá sig aftur í Þjóðkirkjuna á meðan hann horfði á viðtalið:

„Fyrir allmörgum árum var biskup á Íslandi. Þessi biskup varð uppvís að því að vera hreinn og klár drullusokkur. Í tilefni af því gekk ég úr þjóðkirkjunni, einfaldlega vegna þess að mér líkaði ekki við formanninn. Núna sit ég hér á sunnudagskvöldi og horfi á þátt þar sem núverandi biskup er viðfangsefni. Ég gekk í þjóðkirkjuna meðan á þættinum stóð.“

Kona nokkur segist þegar hafa verið búin að gera það, eftir 20 ára fjarveru, og það hafi hún gert eftir að Guðrún varð biskup.

Í athugasemdum við færslur þeirra beggja segjast fleiri hafa gengið aftur í Þjóðkirkjun vegna Guðrúnar.

Annars eru athugasemdirnar og færslunar um viðtalið við Guðrúnu það margar að hér er aðeins rými til að taka nokkur dæmi:

Bjarni Karlsson prestur skrifar:

„Henni ætlar að auðnast að fóta sig vel í embætti. Frá henni stafa skýr skilaboð sem þjóðin skilur: Við erum öll manneskjur. Það er ekki lítils virði.“

Álfhildur Leifsdóttir fyrrverandi oddviti Vinstri grænna í sveitarstjórn Skagafjarðar segir:

„Það er hollt að hlusta á biskup Íslands sem talar með opnum huga af eigin reynslu af allskonar. Því lífið er allskonar og mennskan felst í að viðurkenna það og takast á við það af kærleika og æðruleysi en án dómhörku. Það gerir Guðrún Karls Helgudóttir og er Þjóðkirkjan lánsöm að hafa slíkan leiðtoga.“

Guðrún

Lofsamleg ummæli um framgöngu Guðrúnar eru hins vegar miklu fleiri:

„Guðrún birtist mér sem í senn nútímaleg og sterk kona en ekki síður djúpvitur manneskja sem án efa hefir fært íslensku Þjóðkirkjuna nær almenningi og aukið traust almennings á boðskap sem á enn fullt erindi við okkur öll.“

Yfirlýstur ásatrúarmaður skrifar:

„Mikið má Þjóðkirkjan vera stolt af þessari atorku konu sem hefur tekist að snúa öllu til betri vegar á stuttum ferli sínum og mikið var hún alþýðleg og heillandi í þessu viðtali.“ 

„Biskupinn okkar er dásamleg manneskja.“

„Mjög gott viðtal, við eigum frábæran biskup.“

„Það er ekki oft sem,svona yfirburða viðtalsþàttur er sýndur í sjónvarpinu okkar, þessi þáttur er ógleymanlegur,èg segi takk fyrir.“

„Frábær þáttur og einlægur biskup.“

„Frábær þáttur og yndislegur biskup, einlæg, manneskjuleg og góð fyrirmynd.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅