Kanada herðir aðgerðir gegn Rússlandi
Erlent | AFP | 9.11.2026 | 13:35
Markmiðið er að draga enn frekar úr hernaðargetu Rússlands með aðgerðum gegn aðilum í rússneskum hergagnaiðnaði. Á myndinni má sjá Vladimír Pútín Rússlandsforseta. AFP
Kanadísk stjórnvöld hafa boðað frekari þvingunaraðgerðir gegn Rússlandi vegna stríðsins í Úkraínu.
Tilkynningin var gefin út samhliða þátttöku Anitu Anand, utanríkisráðherra Kanada, í fundi utanríkisráðherra G7-ríkjanna í París.
Samkvæmt tilkynningu kanadíska utanríkisráðuneytisins bætast 38 lögaðilar og 24 einstaklingar á þvingunarlista landsins.
Markmiðið er að draga enn frekar úr hernaðargetu Rússlands með aðgerðum gegn aðilum í rússneskum hergagnaiðnaði. Þar á meðal eru aðilar sem koma að þróun skotflaugatækni og netaðgerðum Rússlands.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗