Dave Chappelle gekk fram af ekkju Charlie Kirk með ummælum sínum

Bandaríski grínistinn Dave Chappelle hefur vakið hörð viðbrögð eftir að hafa gert grín að morðinu á hægrimanninum og áhrifavaldinum Charlie Kirk á uppistandssýningu í Madison Square Garden í New York um helgina.

Chappelle sagðist meðal annars hafa verið í betra skapi eftir að Kirk var myrtur í september í fyrra.

„Síðan þessi náungi, Charlie Kirk, var myrtur ... og ég veit að ég ætti ekki að segja þetta opinberlega, en mér líður betur,“ sagði Chappelle við áhorfendur.

„Ég veit að ég ætti ekki að segja þetta, en þetta er bara tilfinning. Ég bað ekki um að líða svona. Ég er bara að keyra um og hugsa með mér: Af hverju er ég í svona góðu skapi? Ó, já!“

Myndskeið af ummælunum hefur farið víða um samfélagsmiðla og vakið talsverða reiði.

Erika Kirk, ekkja stjórnmálaskýrandans, brást harkalega við í færslu á X þar sem hún gagnrýndi grínista og álitsgjafa sem gera pólitísk morð að skemmtiefni.

„Að sjá vinstrisinnaða hlaðvarpsstjórnendur, grínista og álitsgjafa hlæja að pólitísku morði eins og það sé skemmtiefni og að eyðilegging mannslífs sé eitthvað til að gera að brandara, er meira en viðbjóðslegt,“ skrifaði hún.

„Eiginmaður minn, Charlie Kirk, var myrtur í pólitísku ofbeldisverki. Það er eitthvað sem ég og börnin okkar tvö þurfum að lifa með á hverjum einasta degi það sem eftir er ævinnar.“

Chappelle hafði áður rætt morðið á Kirk í Netflix-uppistandi sínum í desember í fyrra. Þar sagðist hann hafa orðið mjög sleginn þegar hann frétti af því.

Charlie Kirk var 31 árs þegar hann var skotinn til bana á viðburði við Utah Valley-háskólann 10. september 2025. Hann var stofnandi íhaldssömu samtakanna Turning Point USA, sem ekkja hans stýrir nú.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅