Móðir Meghan Markle aðstoðar FBI við rannsókn á hrottalegum myndum

Það er sjaldan lognmolla í kringum hertogaynjuna Meghan Markle og fjölskyldu hennar og skiptir þá engu máli hvort horft er til fjölskyldu hennar sjálfrar í Bandaríkjunum eða tengdafjölskyldu hennar í Buckingham-höll.

Að þessu sinni er það faðir Meghan, Thomas Markle, sem hefur valdið fjaðrafoki eftir að sonur hans steig fram og sagðist hafa fundið barnaníðsefni á gömlum raftækjum. Skömmu síðar bárust fréttir um að barnaníðsefni hefði sömuleiðis fundist í geymslum sem Thomas hafði á leigu í Los Angeles og í Mexíkó.

Thomas var handtekinn á föstudaginn vegna rannsóknar málsins en alríkislögreglunni (FBI) sem beinist nú einnig að því hvort Thomas hafi sjálfur brotið kynferðislega gegn gögnum. Tilefnið voru myndir sem fundust í geymslu í Los Angeles en þær virðast sýna Thomas ásamt stúlkum sem taldar eru vera yngri en 11 ára.

Nú hefur móðir Meghan Markle blandast í málið. Ljóst er að Thomas hafði haft geymslurnar á leigu í nokkra áratugi og er myndefnið því komið nokkuð til ára sinna. Doria Ragland og Thomas voru gift í átta ár en skildu árið 1987. Hún hefur nú verið beðin um að fara yfir tvær myndir og bera þar kennsl á fyrrverandi mann sinn. Eins mun rannsóknin beinast að hálfbróður Meghan, Thomas Markle yngri, sem er nú talinn viðriðinn brotin. Hann er búsettur á Filippseyjum og var að eigin sögn að leita að gömlum farsíma sem hann gæti gefið kærustu sinni. Þess vegna fór hann að róta í kassa sem innihélt eigur föður hans og var mjög brugðið þegar hann uppgötvaði hvað faðir hans geymdi á tækjunum.

„Herra Markle mun hafa beint spjótum sínum að saklausum börnum og leitast eftir að ræna þau sakleysinu með saknæmum hætti,“ sagði yfirmaður FBI, Kash Patel, í yfirlýsingu.

Thomas eldri neitar sök og kallar ásakanirnar „sjúkar lygar“. Hann á yfir höfði sér allt að 20 ára fangelsi.

USA Today greinir frá. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅