Gert að greiða eina og hálfa milljón í sekt

Manninum ber að greiða sektina innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins en sæta ella 48 daga fangelsi. Honum var einnig gert að greiða 228.480 krónur í sakarkostnað. mbl.is/Golli

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann til að greiða eina og hálfa milljón króna í sekt fyrir átta umferðarlagabrot.

Hann ók sex sinnum bifreið sviptur ökurétti, þar af tvisvar undir áhrifum áfengis. Þá ók hann tvívegis smáfarartæki undir áhrifum áfengis.

Maðurinn var jafnframt sviptur ökurétti í fimm ár frá 12. nóvember 2028. Dómurinn var kveðinn upp 5. nóvember.

Ók ölvaður með sex daga millibili

Lögregla stöðvaði manninn við akstur á Fjarðarhrauni í Hafnarfirði 17. janúar á þessu ári. Hann var sviptur ökurétti og mældist vínandamagn í blóði hans 1,73 prómill.

Sex dögum síðar stöðvaði lögregla hann aftur við akstur, þá á Hólshrauni í Hafnarfirði. Hann var sviptur ökurétti og mældist vínandamagn í blóði hans 1,21 prómill.

Maðurinn ók einnig sviptur ökurétti á Hólshrauni og Hraunbrún í apríl, á Miklubraut í maí og í Borgartúni í júní. Við síðastnefnda aksturinn varð umferðarslys. Ákæran vegna þess atviks laut að akstri sviptur ökurétti.

Þá var maðurinn sakfelldur fyrir að aka smáfarartæki undir áhrifum áfengis við Grandagarð og á Tryggvagötu í Reykjavík. Vínandamagn í blóði hans mældist 1,45 prómill í fyrra tilvikinu og 1,84 prómill í því síðara.

Málið dæmt að honum fjarstöddum

Maðurinn mætti ekki við þingfestingu málsins og hafði ekki boðað forföll, þótt honum hefðu verið birt ákæra og fyrirkall. Í fyrirkallinu hafði verið tekið fram að málið gæti verið dæmt að honum fjarstöddum.

Dómurinn taldi brotin sönnuð með vísan til rannsóknargagna málsins.

Samkvæmt sakavottorði hafði maðurinn áður gengist undir sekt fyrir ölvunarakstur í nóvember 2025. Við ákvörðun refsingar var því lagt til grundvallar að hann hefði nú í annað sinn gerst sekur um ölvunarakstur innan lögbundins ítrekunartíma.

Manninum ber að greiða sektina innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins en sæta ella 48 daga fangelsi. Honum var einnig gert að greiða 228.480 krónur í sakarkostnað.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅