Minigarðurinn lokar og óskar eftir gjaldþrotaskiptum
Minigarðurinn í Skútuvogi hefur lokað dyrum sínum og verður rekstri staðarins ekki haldið áfram. Stjórn Munnbitans ehf., sem rekur Minigarðinn, hyggst óska eftir gjaldþrotaskiptum á félaginu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sigmari Vilhjálmssyni, stjórnarformanni og hluthafa Munnbitans ehf.
„Eftir rúmlega sex ára þrautagöngu er því miður ekkert annað í stöðunni en að hætta rekstri,“ segir Sigmar í tilkynningunni.
Hann segir stjórn félagsins ætla að óska sjálf eftir gjaldþrotaskiptum og ganga skipulega frá málum.
Leitt að kveðja starfsfólkið
Sigmar segir ákvörðunina erfiða en að ekki sé önnur skynsamleg leið fær.
„Þótt þetta sé því miður eina skynsamlega niðurstaðan þykir okkur afar leitt að kveðja frábæra starfsfólkið okkar.“
Minigarðurinn hefur boðið upp á minigolf og aðra afþreyingu í Skútuvogi í Reykjavík, auk aðstöðu fyrir samkomur og viðburði.
Sigmar þakkar gestum staðarins fyrir viðskiptin undanfarin ár.
„Við þökkum öllum sem komu, spiluðu, fögnuðu og horfðu með okkur í Minigarðinum. Takk fyrir okkur.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗