Af sjúkrahúsi eftir óhugnanlegt atvik

Ole Didrik Blomberg var borinn af velli.

Ole Didrik Blomberg var borinn af velli. Ljósmynd/Bodø/Glimt

Ole Didrik Blomberg, kantmaður Bodø/Glimt, var útskrifaður af sjúkrahúsi í gærkvöldi eftir að hafa meiðst á hálsi í samstuði við Jakob Rønning-Haugaard, markvörð Tromsø.

Simen Pedersen, fjölmiðlafulltrúi Glimt, sagði við TV 2 að Blomberg liði vel og að hann hefði ferðast heim til Bodø með liðsfélögum sínum.

Blomberg var borinn af velli á börum eftir að hafa fengið aðhlynningu í kjölfar samstuðsins skömmu eftir hálftíma leik.

Þjálfarinn Kjetil Knutsen sagðist hafa verið „mjög áhyggjufullur“ þegar hann sá atvikið.

Skömmu eftir áreksturinn hrundi hluti af stúku gestaliðsins á Romssa Arena, með þeim afleiðingum að nokkrir stuðningsmenn féllu til jarðar.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅