Minigarðurinn lokar og óskar eftir gjaldþrotaskiptum

Sigmar Vilhjálmsson, er framkvæmdastjóri og eigandi Minigarðsins.

Sigmar Vilhjálmsson, er framkvæmdastjóri og eigandi Minigarðsins. Samsett mynd

Minigarðurinn í Skútuvogi hefur lokað dyrum sínum og verður rekstri staðarins ekki haldið áfram. Stjórn Munnbitans ehf., sem rekur Minigarðinn, hyggst óska eftir gjaldþrotaskiptum á félaginu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sigmari Vilhjálmssyni, stjórnarformanni og hluthafa Munnbitans ehf.

„Eftir rúmlega sex ára þrautagöngu er því miður ekkert annað í stöðunni en að hætta rekstri,“ segir Sigmar í tilkynningunni.

Hann segir stjórn félagsins ætla að óska sjálf eftir gjaldþrotaskiptum og ganga skipulega frá málum.

Leitt að kveðja starfsfólkið

Sigmar segir ákvörðunina erfiða en að ekki sé önnur skynsamleg leið fær.

„Þótt þetta sé því miður eina skynsamlega niðurstaðan þykir okkur afar leitt að kveðja frábæra starfsfólkið okkar.“

Minigarðurinn hefur boðið upp á minigolf og aðra afþreyingu í Skútuvogi í Reykjavík, auk aðstöðu fyrir samkomur og viðburði.

Sigmar þakkar gestum staðarins fyrir viðskiptin undanfarin ár.

„Við þökkum öllum sem komu, spiluðu, fögnuðu og horfðu með okkur í Minigarðinum. Takk fyrir okkur.“

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅