Veðbankar telja þennan aðila nú líklegastan til að taka við United

Mauricio Pochettino, landsliðsþjálfari Bandaríkjanna, er nú talinn líklegastur til að taka við Manchester United ef Michael Carrick verður látinn fara.

Þetta kemur fram hjá breska miðlinum Standard, en Pochettino er orðinn efstur á lista veðbanka yfir næsta knattspyrnustjóra United.

Carrick er undir gríðarlegri pressu eftir slæma byrjun liðsins í ensku úrvalsdeildinni, þar sem United er í fallsæti.

Pochettino þekkir ensku úrvalsdeildina vel eftir að hafa áður stýrt Southampton, Tottenham og Chelsea.

Argentínumaðurinn er nú við stjórnvölinn hjá bandaríska landsliðinu og því óljóst hvort hann hefði áhuga á að snúa aftur í félagsliðaboltann.

Eddie Howe og Julian Nagelsmann hafa einnig verið orðaðir við United.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅