Lætur Stefán Einar heyra það - „Fúlmenni með vafasamar hvatir finnast í öllum trúarhópum“

Gauti B. Eggertsson prófessor í hagfræði við Brown-háskóla í Bandaríkjunum gagnrýnir harðlega öfgafulla umræðu um tiltekin trúarbrögð og bendir á að öfgamenn sé að finna í öllum trúarhópum. Hann minnir um leið á rík tengsl íslam, kristni og gyðingdóms. Þótt Gauti nefni engin nöfn þá er alveg ljóst að orðum hans er ekki síst beint að Stefáni Einari Stefánssyni starfsmanni Morgunblaðsins sem hefur farið mikinn í umræðu um múslima á Íslandi.

Gauti fjallar um þetta á Facebook og birtir raunar með mynd af Stefáni Einari, þótt hann segi myndina ekki tengjast efni pistilsins er því alveg ljóst að hverjum pistillinn beinist.

Stefán Einar hefur að undanförnu skrifað röð frétta í Morgunblaðið þar sem hann rifjar upp dómsmál frá síðustu árum. Umrædd mál snúa öll að ofbeldisbrotum Palestínumanna, einkum gegn eiginkonum og börnum, sem fengið hafa landvistarleyfi á Íslandi. Hefur Stefán Einar síðan fylgt fréttunum eftir með pistlum á Facebook þar sem hann varar við að Palestínumenn fái hæli á Íslandi þar sem menning þeirra einkennist af ofbeldi, sérstaklega í garð kvenna og barna. Hefur gagnrýni Stefáns Einars einnig beinst að trúarbrögðunum íslam.

Sjá einnig: Stefán Einar gefur ekki tommu eftir vegna röngu myndbirtingarinnar - „Kebabelskandi góða fólkið hafi fyrst og fremst ógurlegar áhyggjur“

Íslam 

Gauti býr í New York og hefur pistil sinn á þeim orðum að minna á að í borginni séu um 4 prósent kjósenda múslimar. Þar hafi meirihluti kjósenda hins vegar kosið múslima sem borgarstjóra. Í Michigan séu um 2 prósent íbúa múslimar. Þar hafi meirihluti kjósenda nýverið kosið múslima, Abdul El-Sayed, sem fulltrúa sinn í öldungadeild Bandaríkjaþings. 

Gauti minnir því næst á tengsl íslam, kristni og gyðingdóms:

„Nú vill svo til að um 26% mannkyns eru múslimar og 29% kristnir. Bæði íslam og kristni eru abrahamísk trúarbrögð, sprottin úr sömu trúarhefð og gyðingdómur. Þau eiga sér sameiginlega spámenn, sögur og trúarlegar rætur. Kristni byggir á Gamla og Nýja testamentinu, en Nýja testamentið situr þó skörinni hærra. Íslam viðurkennir fyrri opinberanir, sem endurspeglast í Gamla og Nýja testamentinu, en Kóraninn situr þar skörinni hærra.“

Því sé ljóst að íslam og kristni nái til meira en helmings mannkyns:

„Að halda því fram að fólk sem aðhyllist íslam geti ekki lifað í sátt og samlyndi við fólk sem aðhyllist kristni lýsir djúpstæðri vanþekkingu á menningu okkar og sögu mannkynsins. Maður sér þröngsýnt þúfnagöngulagið langar leiðir.“

Um þá sem halda hinu gagnstæða fram segir Gauti:

„Hitt vitum við með vissu. Fúlmenni með vafasamar hvatir finnast í öllum trúarhópum. Enginn trúarhópur hefur einkarétt á slíku fólki. Siðlaus og öfgafull umræða, gegnsýrð af mannfyrirlitningu, virðist hafa færst í aukana meðal öfgafólks í báðum trúarhópum undanfarin ár. Sem betur fer er þetta mjög þröngur hópur sem höfðar til dæmis ekki til almennra kjósenda hérna í Bandaríkjunum, líkt og dæmin sanna. En þessi fámenni, fúllyndi hópur öskrar hærra en venjulegt fullorðið fólk.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅