Simmi og félagar loka Minigarðinum og óska eftir gjaldþrotaskiptum

Eigendur Minigarðsins í Skútuvogi í Reykjavík hafa tekið þá ákvörðun að loka staðnum og óska eftir að rekstrarfélag hans verði tekið til gjaldþrotaskipta.

Vísir greinir frá.

„Eftir rúmlega sex ára þrautargöngu er því miður ekkert annað í stöðunni en að hætta rekstri. Stjórn Munnbitans ehf., sem rekur Minigarðinn, mun sjálf óska eftir gjaldþrotaskiptum og ganga skipulega frá málum,“ segir í fréttatilkynningu frá Munnbitanum, sem Sigmar Vilhjálmsson, stjórnarformaður og hluthafi Munnbitans ehf, undirritar.

„Við þökkum öllum sem komu, spiluðu, fögnuðu og horfðu með okkur í Minigarðinum. Takk fyrir okkur,“ segir enn fremur í yfirlýsingunni.

Kemur fram að eigendum þyki afar leitt að kveðja starfsfólk Minigarðsins.

Aðeins er mánuður síðan að ný vefsíða Minigarðsins var opnuð og nýtt sölukerfi, hannað frá grunni, var tekið í notkun.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅