Forsetinn í langt bann
Olivier Létang, forseti franska knattspyrnufélagsins Lille, hefur verið úrskurðaður í sex mánaða bann, þar af tvo mánuði skilorðsbundna, fyrir að gagnrýna dómara, samkvæmt L’Équipe.
Refsingin tengist viðbrögðum hans eftir 2:2-jafntefli gegn Paris Saint-Germain í ágúst, þegar PSG skoraði tvö mörk í uppbótartíma.
Létang var upphaflega sektaður um 20.000 evrur, en málinu var áfrýjað og það endaði með banninu.
„Við erum vonsvikin með ákvörðunina og munum nýta allar nauðsynlegar áfrýjunarleiðir,“ segir í yfirlýsingu félagsins.
Hákon Arnar Haraldsson spilar með Lille.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗