Davíð og Stella eiga von á barni
Ofurdansarinn og listræni stjórnandinn Stella Rósenkranz og matreiðslumaðurinn Davíð Örn Hákonarson eiga von á barni. Þau tilkynna um gleðifréttirnar á samfélagsmiðlum.
„Þrjú bráðum,“ skrifar Stella á Instagram og birtir fjölda mynda af parinu. Samkvæmt færslunni eiga þau von á dreng því bolir málaðir í ljósbláum lit einkenna myndirnar.
Parið fór að stinga saman nefjum á síðasta ári. Stella hefur verið danshöfundur fyrir IceGuys og leikstýrt og samið dansa fyrir tónlistarmyndbönd, kvikmyndir og þætti. Davíð rekur veitingastaðinn Skreið í miðbæ Reykjavíkur.
Smartland óskar parinu innilega til hamingju með gleðifréttirnar!
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗