Ofbeldismyndskeið fengu 48 milljón áhorf

TikTok, sem nýtur mikilla vinsælda og er í eigu kínverska fyrirtækisins ByteDance, hefur sætt fjölda málsókna og rannsókna vegna ásakana um að hafa ekki verndað börn og ungmenni með fullnægjandi hætti. AFP

Spænsk samtök sem berjast gegn upplýsingaóreiðu saka TikTok um að gera ekki nóg til að koma í veg fyrir að barnaníðingar nálgist efni sem sýnir kynferðisofbeldi gegn börnum eða falist eftir myndum frá börnum á miðlinum.

„Efni sem ætla mætti að fyndist aðeins á myrkravefnum er á TikTok,“ sögðu samtökin Maldita.es í dag.

Í rannsókn samtakanna, sem birt var í dag, voru skráð yfir þúsund myndskeið sem sýna ofbeldi gegn börnum. Samtals hafði verið horft á þau 48 milljón sinnum.

„Niðurstöður þessarar rannsóknar vekja alvarlegar efasemdir um árangur aðgerða TikTok til að vernda börn gegn ofbeldi. Þær benda einnig skýrt til þess að þeir sem sækjast eftir að misnota börn nýti sér markvisst eiginleika miðilsins,“ sögðu samtökin.

TikTok hafði ekki svarað beiðni AFP-fréttastofunnar um viðbrögð.

Fjarlægði aðeins tíunda hluta efnisins

Að sögn Maldita.es fjarlægði TikTok aðeins tíunda hluta þess efnis sem samtökin höfðu tilkynnt um. Þá lokaði miðillinn aðeins fyrir aðgang að 26 prósentum ólöglegra færslna á Spáni.

TikTok, sem nýtur mikilla vinsælda og er í eigu kínverska fyrirtækisins ByteDance, hefur sætt fjölda málsókna og rannsókna vegna ásakana um að hafa ekki verndað börn og ungmenni með fullnægjandi hætti. Fyrirtækið hefur ítrekað hafnað slíkum ásökunum.

Á föstudag krafðist Evrópusambandið þess að TikTok breytti „skaðlegri“ hönnun For You-efnisveitunnar, sem birtir hverjum notanda sérsniðið efni. Að öðrum kosti ætti fyrirtækið á hættu að sæta háum sektum samkvæmt reglum sambandsins um stafrænt efni.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅