Umfangsmikill gagnaleki í Noregi

Þota Norwegian Airlines sést hér á leið til lendingar á Arlanda-flugvelli í Stokkhólmi. Gögnum fjölda farþega hefur verið lekið um lýðnetið. AFP

Norska flugfélagið Norwegian og Berg-Hansen, ein umsvifamesta ferðaskrifstofa Noregs, hafa tilkynnt Datatilsynet, systurstofnun Persónuverndar í Noregi, um stórfelldan gagnaleka í kjölfar netinnbrots hjá miðasölukerfinu Amadeus.

Er talið að í versta falli gætu persónu- og vegabréfaupplýsingar um ferðir fjölda Norðmanna hafa fallið svokölluðum ógnaraðilum í skaut, ferðir sem einkaaðilar ýmist bókuðu eða tæplega 190 norsk ríkis- og einkafyrirtæki.

Segir Per Arne Villadsen forstjóri Berg-Hansen, í samtali við norska ríkisútvarpið NRK, að fyrirtækið hafi verið upplýst um stöðu mála 26. október, hins vegar hafi talsmenn Amadeus uppgötvað innbrotið í kerfi sín 21. september, en sagst hafa lokað fyrir óheimilan aðgang þremur dögum síðar.

Aðgangur að farþegalistum meðal lekinna gagna

Segir Villadsen handhafa óheimila aðgangsins meðal annars hafa haft aðgang að farþegalistum, en í síðustu viku vöruðu nokkur asísk flugfélög við því að persónuupplýsingar úr tugum þúsunda ferða hefðu lekið.

„Einhver hefur haft aðgang að kerfunum hjá Amadeus og þar af leiðandi haft aðgang til að skoða farþegalista,“ segir Villadsen við NRK.

Amadeus er sameiginlegur vettvangur fyrir bókun flugmiða, en einnig fyrir hótel og lestir. Það er rekið af fyrirtæki með sama nafni, Amadeus IT, með höfuðstöðvar í Madríd.

Amadeus skrifar á vef sinn að fyrirtækið hafi uppgötvað „veikleika sem snýr að kerfinu sem sýnir ferðabókanir“ og að „ákveðin bókunargögn hafi orðið aðgengileg“.

Vilja talsmenn fyrirtækisins ekki útskýra nánari smáatriði varðandi gagnalekann við NRK, heldur vísa til fréttaflutnings. Samkvæmt Japan Airlines hefur Amadeus fundið slóð eftir óviðkomandi í tölvukerfunum á tímabilinu ágúst 2023 til september 2026.

NRK

NRK-II (ráðist með hörku gegn Háskólanum í Tromsø)

Nettavisen

E24

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅