Bensíndælan bilaði – Það hafði ótrúlegar afleiðingar í för með sér

Bram Dunehew frá Norður-Karólínu í Bandaríkjunum getur þakkað biluðum prentara við bensíndælu fyrir að vera 250 milljónum íslenskra króna ríkari.

Dunehew var að taka bensín á bílinn sinn á Sam's Mart-bensínstöðinni í Harrisburg á dögunum þegar hann ætlaði að prenta út kvittun. Prentarinn við dæluna var hins vegar bilaður og því þurfti hann að gera sér ferð inn á bensínstöðina.

Þar tók hann skyndiákvörðun sem átti eftir að breyta lífi hans. Hann ákvað að kaupa sér miða í bandaríska Powerball-lottóinu fyrir útdráttinn um þar síðustu helgi.

Þegar dregið var út kom í ljós að Dunehew hafði verið með allar fimm hvítu tölurnar réttar og tryggt sér eina milljón Bandaríkjadala. Þar sem hann hafði einnig greitt fyrir svokallaðan Power Play-möguleika tvöfaldaðist vinningurinn í tvær milljónir dala.

Í samtali við happdrætti Norður-Karólínu sagðist Dunehew vart trúa eigin heppni.

„Þetta er alveg galið því ég hefði aldrei keypt þennan miða ef kvittunin hefði prentast út við dæluna,“ sagði hann.

Útdrátturinn fór fram um hrekkjavökuna og ljóst er að hátíðin hefur nú fengið alveg sérstakan sess í huga Dunehew.

„Ég held að hrekkjavakan sé núna orðin uppáhaldshátíðin mín. Það var gaman að ganga á milli húsa og safna sælgæti þegar ég var krakki, en þetta er algjörlega klikkað.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅