Davíð og Stella eiga von á barni

Davíð og Stella eiga von á sínu fyrsta barni saman.

Davíð og Stella eiga von á sínu fyrsta barni saman. Samsett mynd/Instagram

Ofurdansarinn og listræni stjórnandinn Stella Rósenkranz og matreiðslumaðurinn Davíð Örn Hákonarson eiga von á barni. Þau tilkynna um gleðifréttirnar á samfélagsmiðlum. 

„Þrjú bráðum,“ skrifar Stella á Instagram og birtir fjölda mynda af parinu. Samkvæmt færslunni eiga þau von á dreng því bolir málaðir í ljósbláum lit einkenna myndirnar. 

Parið fór að stinga saman nefjum á síðasta ári. Stella hefur verið danshöfundur fyrir IceGuys og leikstýrt og samið dansa fyrir tónlistarmyndbönd, kvikmyndir og þætti. Davíð rekur veitingastaðinn Skreið í miðbæ Reykjavíkur.

Smartland óskar parinu innilega til hamingju með gleðifréttirnar! 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅