Arfleiddi safnið að þúsundum listaverka og íbúð

Frosti Fjalar (Jakob Jónsson) hefur gefið Listasafni Árnesinga þúsundir listaverka. Myndin er tekin á sýningunni Bjarmaband í Hafnarborg.

Myndlistarmaðurinn Frosti Fjalar Jónsson gerði Listasafn Árnesinga að einkaerfingja sínum. Arfurinn nær til margra þúsunda listaverka, íbúðar hans, alls innbús og bankainnistæðna. Aðalfundur safnsins hefur samþykkt samhljóða að taka við arfinum ásamt þeim kvöðum sem honum fylgja.

Þetta kemur fram í fundargerð aðalfundar Listasafns Árnesinga. Frosti Fjalar lést 26. júní síðastliðinn. Með erfðaskrá sinni fól hann safninu að varðveita arfleifð sína og tryggja henni verðugan sess í íslenskri listasögu.

Verkin skráð og ljósmynduð

Í erfðaskrá Frosta Fjalars, sem áður bar nafnið Jakob Jónsson, er kveðið á um að listaverkin verði öll yfirfarin, flokkuð, skráð og ljósmynduð með rafrænum hætti. Þeim verði jafnframt komið í góða og varanlega geymslu.

Þá er það skilyrði að safnið vinni að útgáfu bókar um Frosta Fjalar sem myndlistarmann, með það að markmiði að gera arfleifð hans aðgengilega almenningi.

Fram kom á fundinum að þessum verkefnum myndi fylgja talsverð vinna og kostnaður. Eignir dánarbúsins væru þó taldar nægja til að standa undir áætluðum kostnaði og arfurinn gæti eflt starfsemi safnsins umtalsvert. Ekki kemur fram í fundargerðinni hvert heildarverðmæti arfsins er.

Óskað eftir opinberum skiptum

Stjórn safnsins hafði áður samþykkt að taka við arfinum en samþykki aðalfundar þurfti einnig vegna kvaða í erfðaskránni.

Aðalfundurinn samþykkti jafnframt að óska eftir opinberum skiptum á dánarbúinu og að skiptastjóri yrði skipaður yfir því.

Fundarmenn vottuðu aðstandendum Frosta Fjalars einnig samúð sína og samþykktu sérstaka bókun um móttöku arfsins.

„Samþykkt er að arfurinn verði þeginn enda eru þær óskir sem fylgja arfleiðinni þess eðlis að þær munu nýtast til eflingar faglegu starfi safnsins um ókomna tíð,“ segir í bókuninni.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅