Bakkað var á bíl Heiðu og Hildur tók við nýja bílnum
Innlent | mbl | 9.11.2026 | 12:55
Hildur Björnsdóttir tók við embætti borgarstjóra í Reykjavík af Heiðu Björgu Hilmisdóttur. mbl.is/Hulda Margrét
Bakkað var á bíl Heiðu Bjargar Hilmarsdóttur, fyrrverandi borgarstjóra, í mars sem leiddi til þess að hann var seldur. Um var að ræða Hyundai-jeppa.
Í framhaldinu var tekinn nýr bíll á rekstarleigu af gerðinni Audi Q7 3.0 sem fyrrverandi borgarstjóri hafði afnot af þar til Hildur Björnsdóttir tók við sem borgarstjóri í lok maí. Embættinu fylgdi jeppinn svo.
Vísir sagði fyrst frá óhappinu
Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg varð óhappið ekki nærri húsakynnum Ráðhúss Reykjavíkur og að Hyundai-jeppinn, sem var af gerðinni Ioniq 5, hafi verið seldur í framhaldinu.
Þá fengust jafnframt þær upplýsingar að kaup á nýjum bíl fyrir borgarstjóra væru til skoðunar.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
