Nefnir fjóra leikmenn sem geta svo sannarlega orðið til þess að United fellur

Phil Neville, fyrrverandi leikmaður Manchester United, var harðorður í garð varnarmanna liðsins eftir dramatískt 4-4 jafntefli gegn Aston Villa á sunnudaginn.

United er komið í fallsæti ensku úrvalsdeildarinnar og hefur fengið á sig 30 mörk á tímabilinu. Ekkert lið í fimm stærstu deildum Evrópu hefur fengið fleiri mörk á sig.

Neville gagnrýndi sérstaklega varnarlínu United, sem skipuð var Noussair Mazraoui, Leny Yoro, Ayden Heaven og Patrick Dorgu undir lok leiksins.

„Þessi varnarlína kemur þér niður um deild. Þessi varnarlína kostar knattspyrnustjórann starfið,“ sagði Neville á NBC Sports.

„Ég held að þessi vörn geti ekki haldið Manchester United í úrvalsdeildinni.“

Gary Neville tók undir gagnrýnina en beindi sjónum sínum sérstaklega að slæmum leikmannakaupum félagsins undanfarin ár.

„Þetta er alltaf sama sagan. Við höfum séð marga frábæra þjálfara koma og fara en ekkert hefur virkað,“ sagði Gary.

Hann telur vandann liggja mun dýpra en hjá knattspyrnustjóranum Michael Carrick.

„Ef þú kaupir ranga leikmenn, ert með lélega stjórn og skortir sterka forystu innan félagsins, þá mun þér mistakast.“

Gary sagði jafnframt að United hefði nauðsynlega þurft að styrkja vörnina í sumar.

„Við öskruðum öll á að félagið þyrfti að kaupa varnarmenn, en það var ekki gert.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅